fasteignasölur.is
Eyrarvík 11
1 af 29

Um eignina

Eignaland kynnir í einkasölu fallegt og vel skipulagt þriggja herbergja endaraðhús að Eyrarvík 11 á Selfossi. Eignin er um 92 fm að stærð, með tveimur svefnherbergjum, opnu og björtu alrými, góðu baðherbergi og þvottahúsi. Bílaplan og frágangur fyrir framan eignina hefur verið kláraður.

Nánari uppllýsingar hjá Jens Magnúsi í síma 893-1984 eða magnus@eignaland.is

Nánari lýsing:

Komið er inn í forstofu með góðu skápaplássi.
Eldhús og stofa eru í opnu og björtu alrými. Eldhúsið er með góðu skápa- og vinnuplássi og er góð aðstaða fyrir borðstofuborð við eldhúsið.
Stofan er björt og rúmgóð með útgengi út á lóð.
Svefnherbergin eru tvö, bæði rúmgóð og vel skipulögð.
Baðherbergi er flísalagt með góðri innréttingu, sturtu og upphengdu salerni.
Þvottahús er innan íbúðar með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í þægilegri vinnuhæð og flísum á gólfi.
Parket er á öllum gólfum neða þvottahús og baðherbergi þar eru flísar.

Um er að ræða endaraðhús sem gefur aukið næði og góða nýtingu á lóð. Bílaplan fyrir framan eignina er fullfrágengið með ruslatunnuskýli.
Húsið er timburhús, klætt að utan með lituðu báruáli og Stac Bond ál klæðningu í bland, bárujárn er á þaki.
Falleg og vel skipulögð þriggja herbergja eign sem vert er að skoða nánar.


Allar nánari upplýsingar eru hjá fasteignasala:
Jens Magnús Jakobsson lgf., sími 893-1984 eða magnus@eignaland.is



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.

Eyrarvík 11

800 Selfoss
68.900.000 kr.749 þ./m²
Rað-/parhús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2023TegundRað-/parhúsStærð92 m²Herbergi3FasteignanúmerF25190301Fasteignamat67.950.000 kr.Brunabótamat52.750.000 kr.
Skráð hjá
Eignaland
HeimilisfangHlíðarsmára 5, 2. hæð, 200 KópavogurSími547-3900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 29 myndir

Upp ↑