fasteignasölur.is
Hverafold 19
1 af 23

Um eignina

Betri Stofan Fasteignasala kynnir: Glæsilega, vel skipulagaða og mikið endurnýjaða 98,6 fm 3ja herbergja endaíbúð með sér þvottahúsi innan íbúðar og vestur-svölum með frábæru útsýnis yfir borgina.  Íbúðin er öll endurnýjuð að innan á afar vandaðan máta, m.a. gólfefni, hurðar, innréttingar í eldhúsi og á baðherbergi.  
Öll tæki í eldhúsi eru ný; Helluborð, ofn, uppþvottavél og ísskápur.  Ný þvottavél og þurrkari fylgir. 


Nánari lýsing:
Forstofa/hol: parket á gólfi
Þvottahús: við forstofu er þvottahús með flísum á gólfi. Ný snyrtileg innrétting með efri skápum, 
Eldhús: er með svartri nýrri og fallegri innréttingu frá Axis, steinn á borðum með niðurfelldum vaski og helluborði, ný tæki og góð borðaðstaða. Parket á gólfi. Stór gluggi hleypir góðri birtu inn í rýmið.
Stofa og borðstofa: eru samliggjandi og bjartar með parketi á gólfi og útgengt er á yfirbyggðar svalir í vestur frá stofunni. Frábært útsýni yfir borgina.
Herbergin eru 2: bæði rúmgóð og björt með parketi á gólfi og rúmgóðum nýjum fataskápum frá Axis.
Baðherbergi: er flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni og falleg hvít innrétting frá Axis og stórum spegli. Baðkar með sturtuaðstöðu.  Opnanlegur gluggi er á baðherberginu sem gefur góða birtu inn. Baðherbergið er allt nýlega endurnýjað.
Sameign: sér geymsla fylgir eigninni og einnig sameiginleg hjóla & vagnageymsla og þurkherbergi.
Viðhald : Þak var viðgert og m.a. skipt um járn hússins 2025. Skipt var um glugga og gler austan megin í húsinu nýlega. Einnig voru yfirbyggðar svalir endurnýjaðar árið 2025 (gler og gluggar).

Þetta er rúmgóð, björt og fjölskylduvæn íbúð á frábærum stað í Grafarvogi þar sem göngufæri er í skóla, leikskóla og þjónustu. 

Nánari upplýsingar veita : Páll Þórólfsson , í síma 8939929, tölvupóstur pall@betristofan.is.eða 

 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Hverafold 19

112 Reykjavík
74.900.000 kr.760 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1985TegundFjölbýlishúsStærð98,6 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF204259223Fasteignamat67.600.000 kr.Brunabótamat49.350.000 kr.
Skráð hjá
Betri Stofan fasteignasala
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 23 myndir

Upp ↑