fasteignasölur.is
Strikið 1B
1 af 29

Um eignina

Gimli fasteignasala og Bárður H Tryggvason kynna stórglæsilega 2ja herbergja íbúð, 98,6 fm. á 5. hæð, merkt 05-02 (efsta hæð) við Strikið í Garðabæ.
Stæði í upphitaðri bílgeymslu fylgir merkt B08. Góð sérgeymsla er innaf bílastæðinu Tvennar svalir.
Húsið er fjölbýlishús með lyftu og er byggt fyrir 60 ára og eldri. Bygg ehf byggði húsið. Eign í algjörum sérflokki.

Smellið hér fyrir myndband af eigninni

Íbúðin er glæsilega innréttuð með fallegum flísum á gólfi. Innréttingar eru frá Axis, heimilistæki frá Ormsson, innihurðir frá Parka og hreinlætistæki frá Tengi.


NÁNARI LÝSING:
Anddyri/forstofa með  góðum fataskápur, útg. á svalir í norður og fallegt útsýni.
Rúmgott svefnherbergi með fataherbergi innaf.
Eldhús með fallegri innréttingu og tækjum.
Glæsileg stofa með aukinni lofthæð (eins og sést á myndum íbúðarinnar)
Útgengi úr stofu út á yfirbyggðar stórar suðursvalir með svalalokun.
Baðherbergi er sérlega vandað með góðri Walk inn sturtu og innréttingu.
Sérþvottahús flísalagt með góðri innréttingu.
Jónshús er staðsett á móti þar sem ýmis þjónusta er í boði fyrir íbúa hússins, m.a. léttur matur í hádeginu og ýmis námskeið og félagsstarf eldri borgara í boði. 

Innan hússins er salur fyrir íbúða hússins til þess að halda fundi eða veislur/mannfagnaði. 
Húsið er sérlega vandað og lóðin glæsileg.

Nánari upplýsingar veitir Bárður H Tryggvason í síma milli  kl. 9:00 og 19:00 alla virka daga 8965221 eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til bardur@gimli.is.
Niðurlag. Glæsileg íbúð í fallegu og vel byggðu fjölbýlishúsi með lyftu á eftirsóttum stað fyrir eldri borgara.


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. 
Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.500,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á. 

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.

Gimli gerir betur...

Strikið 1B

210 Garðabær
98.500.000 kr.999 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár2018TegundFjölbýlishúsStærð98,6 m²Herbergi2InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF25024824Fasteignamat91.000.000 kr.Brunabótamat72.650.000 kr.
Skráð hjá
Gimli
HeimilisfangSkipholt, 35 Rvk. - Eyravegur 29, Selfoss, 105 Reykjavík - 800 SelfossSími570-4800

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 29 myndir

Upp ↑