fasteignasölur.is
Álakvísl 65
Opið hús í dag kl. 17:30–18:00
1 af 35

Um eignina

Húsasalan og Jón Örn Kristinsson löggiltur fasteignasali kynna:
LÆKKAÐ VERÐ
Opið hús miðvikudaginn 9. September milli kl. 17:30 -18:00 


Fallegt og mikið endurnýjað endaraðhús á þessum vinsæla stað, (m.a. þak, gluggar, pallur, eldhús o.fl.) . Sér inngangur, stór nýleg suðurverönd með innb. geymslum ásamt góðu stæði/bílskúr í bílskýli.

Nánari lýsing:
Neðri hæð:

Komið er inn í fallega forstofu með flísum á gólfi og skápum.
Gesta salerni með flísum.
Eldhúsið er með korkflísum á gólfi, nýlegri hvítri innréttingu og borðkrók við glugga.
Vinnuherbergi með parketi og glugga.
Góð stofa og borðstofa með góðum gluggum og útgang út á stórann nýlegan pall til suðurs. Við enda pallsins hefur verið útbúin góð geymsla fyrir t.d. grillið, útihúsgögnin, trampolínið o.fl.
Stíginn upp á efri hæðina er nýlega teppalagður fallegu ljósu teppi, stór gluggi sem gerir holið sérlega bjart.
Efri hæð:
Komið er upp á pall með parketi og skápum.
Rúmgott hjónaherbergi með parketi og skápum.
Tvö barnaherbergi með parketi og skápum.
Baðherbergi með glugga, flísalagt, baðkar með sturtu, og lagt fyrir þvottavél.
Risherbergið er stórt og er ekki inni í femetrafjölda íbúðarinnar það hefur verið nýtt sem m.a. sjónvarpsherbergi eða svefnherbergi en er í dag nýtt sem geymsla. Þar er parket á gólfi, loft klædd og gaflgluggi.

Bílageymslan er beint undir húsinu og því ekki langt að fara, stæðið er síðan nánast eins og bílskúr og sérlega rúmgott.

Á síðustu árum hefur m.a. verið endurnýjað, 
2025 var sett nýtt járn á þakið og nýjir þakgluggar.
2025 Nýtt ljóst teppi á stiga.
2022 Eldhús endurnýjað.
2020 Gestasalerni endurnýjað.
2020 og til dagsins í dag er búið að endurnýja nær allt gler í gluggum.

Eignin Álakvísl 65 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 204-3706, birt stærð 146.0 fm.

Nánari upplýsingar veitir Jón Örn Kristinsson, í síma 898-4588, tölvupóstur jon@husasalan.is.

Álakvísl 65

110 Reykjavík
114.900.000 kr.787 þ./m²
Rað-/parhús3 svefn · 2 bað
Byggingarár1987TegundRað-/parhúsStærð146 m²Herbergi5InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF20437066Fasteignamat94.250.000 kr.Brunabótamat73.400.000 kr.
Skráð hjá
Húsasalan
HeimilisfangSíðumúla 33, 108 ReykjavíkSími537-9000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 35 myndir

Upp ↑