fasteignasölur.is
Ljósheimar 18
1 af 18

Um eignina

REMAX kynnir: 4ra herbergja íbúð á 2. hæð í lyftuhúsi – Ljósheimar 14–18, Reykjavík Björt og vel skipulögð 87,6 fm 4ra herbergja íbúð á annarri hæð í níu hæða lyftuhúsi við Ljósheima 14–18 í Reykjavík. Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu og borðstofu, baðherbergi, þrjú svefnherbergi og sérgeymslu. Húsið Ljósheimar 14–18 er níu hæða steinsteypt fjölbýlishús með kjallara. Í húsinu eru 57 íbúðir á átta hæðum. Í kjallara eru sérgeymslur, sameiginleg hjóla- og þvottageymsla, en á níundu hæð er sameiginlegur fundarsalur. Á lóðinni eru 40 sameiginleg bílastæði auk 15 bílastæða á lóð handan götunnar sem tilheyrir húsinu.

Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is
Allar nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Gíslason löggiltur fasteignasali í gsm 694-4700 eða steini@remax.is.


Nánari lýsing Forstofa er með flísum á gólfi og góðum fataskápum. Eldhúsið er með flísalögðu gólfi, hvítri innréttingu með svartri borðplötu og hvítum flísum milli efri og neðri skápa. Þar eru ofn í vinnuhæð, helluborð, gufugleypir og tengi fyrir uppþvottavél. Stofa og borðstofa eru með plastparketi á gólfi og þaðan er útgengt á rúmgóðar vestursvalir um stóra rennihurð. Hjónaherbergi er með plastparketi, fataskápum og útgengi á sömu vestursvalir. Baðherbergið er flísalagt að hluta, með sturtuklefa, innréttingu með vaski, upphengdu salerni og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Tvö barnaherbergi eru með plastparketi á gólfi og fataskápum. Í kjallara fylgir íbúðinni 4,7 fm sérgeymsla auk aðgangs að sameiginlegri hjólageymslu og þvottahúsi. Staðsetning Eignin er á vinsælum stað þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir, þjónustu og góðar samgöngur

Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is
Allar nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Gíslason löggiltur fasteignasali í gsm 694-4700 eða steini@remax.is.

Ljósheimar 18

104 Reykjavík
65.900.000 kr.752 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár1965TegundFjölbýlishúsStærð87,6 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF20221601Fasteignamat67.450.000 kr.Brunabótamat49.450.000 kr.
Skráð hjá
RE/MAX
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 18 myndir

Upp ↑