fasteignasölur.is
Flétturimi 7
Opið hús 13. sept. kl. 15:00–15:30
1 af 21

Um eignina

Sunna fasteignasala og Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., kynna Flétturima 7, íbúð 203.
 
Um er að ræða virkilega glæsilega og algjörlega endurnýjaða tæplega 100 fm íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýlishúsi. Íbúðin skiptist í stóra forstofu, 2 góð svefnherbergi, baðherbergi, fataherbergi/skot, rúmgott opið eldhús, borðstofu og stofu, þvottahús/búr, og geymslu í sameign. Útgengt er á rúmgóðar hornsvalir frá stofu. Næg bílastæði eru framan við húsið. 
 
Á árunum 2023-2024 var eignin tekin í gegn og skipulagi íbúðarinnar breytt:
Útbúin var forstofa með skápum og console borði sem fylgir eigninni.
* Útbúið var fataherbergi í skoti á ganginum með sérsmíðuðum skápum.
* Í eldhúsi var milliveggur tekinn niður og eyja sett í staðinn. Eyjan var sérsmíðuð og flísalögð.
* Hurð á baðherbergi var færð til að koma fyrir skáp inn á baði.
* Baðkar tekið og útbúin walk-in sturta með glerhlið.
* Þvottahús var stækkað og innbyggð rennihurð sett í stað venjulegrar hurðar.
* Dregið var í nýtt rafmagn og nýjum innstungum bætt við. Ný ljós sett í alla íbúðina. Skipt um alla slökkvara.
* Hiti var settur í gólf.
* Flísalagt með vönduðum flísum frá Ebson sem eru 120x120.
* Allar hurðar endurnýjaðar og sagað úr loftum til að þær næðu alveg upp. Hurðarnar eru frá Mood Interiors.
* Nýjir fataskápar settir í hjónaherbergi og sérsmíðuð hilla sem fylgir eigninni.
* Blöndunartæki bæði í eldhúsi og inn á baði voru endurnýjuð. Á baðinu eru vönduð blöndunartæki frá Vola úr Tengi.
* Klósett og vaskur endurnýjað. Hvoru tveggja frá Ísleifi Jónassyni.
* Öll íbúðin var máluð ásamt því sem loft var sléttað (var áður hraunað).

Flestir aukahlutir innan íbúðar, s.s. höldur og hurðahúnar,  koma frá Járn og gler og eru mjög vandaðir. Allar innréttingar eru sérsmíði frá Birninum. Led ljós eru inn í tækjaskáp í eldhúsi og inn í skápum í forstofu, á gangi og í hjónaherberginu.

Tækin í eldhúsinu, þ.e. ísskápur, eldavél, og helluborð eru mjög vönduð og eru frá Bosch. Frystiskápur í þvottahúsi er frá Electrolux. Öll tæki eru innbyggð og fylgja.
Flísar sem notaðar eru á eyju, inn á baði og á fleiri stöðum til að tengja rýmin saman koma frá Álfaborg. 
Gardínur voru sérsaumaðar fyrir alla íbúðina. Þær eru tvöfaldar í svefnherbergjum og geta fylgt. Sama með öll ljós, þau geta fylgt.
 
Framkvæmdir utanhúss: 
Húsið hefur almennt fengið gott viðhald í gegnum árin. Árið 2021 var þak eignarinnar endurnýjað í heild sinni. Tvær hleðslustöðvar voru settar upp á bílaplani árið 2023. 
Þá var skipt um teppi á stigagangi 2024.

Hússjóður er kr. 26.847.
 
Þetta er einstök eign þar sem hvergi hefur verið til sparað í endurbótum. Öll vinna var framkvæmd af fagmönnum og allt efnisval valið af kostgæfni. Sami viður og flísar flæða um eignina og mynda heild sem tengja saman öll rými.Útkoman er afar hlýleg og virkilega falleg eign. 
 
Flétturimi er á góðum stað innan Grafarvogs með alla þjónustu við hendina. Stutt er í Spöngina, gönguleiðir og útivistarsvæði. 
Nánari upplýsingar veitir Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., í síma 8633445 og netfanginu marta@sunnafast.is.
 
 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Sunna fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald er tekið fyrir kaupsamninga, veðskuldabréf, veðleyfi, umboð o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Flétturimi 7

112 Reykjavík
83.900.000 kr.850 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1990TegundFjölbýlishúsStærð98,7 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF20401561Fasteignamat72.450.000 kr.Brunabótamat62.700.000 kr.
Skráð hjá
Sunna fasteignasala ehf.
HeimilisfangSíðumúli 22, 105 ReykjavíkSími863-3445

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 21 myndir

Upp ↑