Um eignina
Íbúðin er 82,0 fm samkvæmt skráningu og er staðsett í snyrtilegu og viðhaldsléttu fjölbýlishúsi á eftirsóttum stað í Mosfellsbæ. Skipulag eignarinnar er gott og nýtist fermetrafjöldinn vel.
Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, rúmgóða og bjarta stofu, eldhús í opnu rými við stofu, baðherbergi og þvottahús. Frá stofu er gengið út á rúmgóðar svalir með fallegu og víðáttumiklu útsýni. Eigninni fylgir sérgeymsla auk aðgangs að sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Lóðin umhverfis húsið er stór og snyrtileg og gott framboð er af bílastæðum við húsið.
Nánari lýsing eignar
Forstofa: Flísalögð og með fatahengi.
Hol/gangur: Tengir rými íbúðarinnar vel saman, parket á gólfi.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa í opnu og skemmtilegu samspili við eldhús. Útgengt er úr stofu á góðar svalir með miklu útsýni.
Eldhús: Viðareldhúsinnrétting með góðu skápaplássi. Eldavél með háfi yfir, stæði fyrir uppþvottavél og flísar á milli efri og neðri skápa. Góður borðkrókur er við eldhúsið.
Svefnherbergi: Tvö góð svefnherbergi, bæði með fataskápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt með viðarinnréttingu og speglaskáp. Baðkar með sturtuaðstöðu.
Þvottahús: Sér þvottahús er inn af baðherbergi, flísalagt og þægilega staðsett innan íbúðar.
Geymsla: Sérgeymsla fylgir íbúðinni og er staðsett á hæðinni.
Sameign: Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í húsinu.
Frábær staðsetning fyrir fjölskyldufólk
Klapparhlíð 32 er einstaklega vel staðsett í barnvænu og fjölskylduvænu hverfi þar sem öll helsta þjónusta er í næsta nágrenni. Stutt er í Lágafellsskóla, leikskólana Hulduberg og Höfðaberg, Lágafellslaug, íþróttaaðstöðu og líkamsrækt. Börn geta komist í skóla og helstu tómstundir án þess að þurfa að fara yfir fjölfarnar umferðargötur.
Hlíðavöllur, golfvöllur Golfklúbbs Mosfellsbæjar, er einnig í nágrenninu auk fjölbreyttra göngu- og útivistarleiða.
Hér er um að ræða bjarta, vel skipulagða og fallega staðsetta eign á eftirsóttum stað í Mosfellsbæ sem vert er að skoða.
Hér er sjón sannarlega sögu ríkari!
Nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Geir Ólafsson Löggiltur fasteignasali, í síma 895-5198, tölvupóstur bjossi@trausti.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Klapparhlíð 32
Staðsetning
Allar 20 myndir
Upp ↑


















