fasteignasölur.is
Ásatún 24
1 af 22

Um eignina

Eignaver 460-6060

Ásatún 24 íbúð 102 Akureyri.

Falleg, nýleg, björt og rúmgóð 4ra herbergja íbúð á jarðhæð í fjölbýli á góðum stað í Naustahverfi. Íbúðin er 108,4 fm. Laus 01.10.2026.


Nánari lýsing:

Forstofa, flísar á gólfi og fataskápur þar.
Gangur, flísar á gólfi. 
Barnaherbergin eru tvö, parket á gólfum herbergja og fataskápur í þeim báðum. 
Hjónaherbergið er rúmgott og fínt, flísar á gólfi og fataskápur þar. 
Baðherbergið er með flísum á gólfi og veggjum að mestu. Innrétting með kappalýsingu auk þess er innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð,  upphengt WC, skolaskur og handklæðaofn. 
Stofa og eldhús koma saman í einu rými. 
Stofan er rúmgóð og björt, flísar á gólfi. 
Eldhúsið er rúmgott, góð hvít innrétting með spónlögðum ljósum við, flísar á gólfi og á milli skápa.  Úr eldhúsi er farið út á steypta verönd mót suðri. Uppþvottavél fylgir með. 
Geymsla er í íbúð, flísar á gólfi þar. 

Annað:
- Falleg og sérlega rúmgóð eign á vinsælum stað í Naustahverfi.
- Mikið og gott skápapláss. 
- Þægileg aðkoma að fjölbýlinu. Rúmgott allt í kring. 
- Fjölmörg bílastæði bæði við blokkina eins hinum megin við götuna. 
- Eignin hefur verið í útleigu og er til afhendingar 01.10.2026.
- Fasteignin er í einkasölu hjá Eignaveri. 

Nánari upplýsingar veita:
Begga           s: 845-0671    /begga@eignaver.is
Tryggvi         s: 862-7919    / tryggvi@eignaver.is
Arnar            s: 898-7011    / arnar@eignaver.is

 

Ásatún 24

600 Akureyri
75.900.000 kr.700 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2014TegundFjölbýlishúsStærð108,4 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF23485331Fasteignamat68.900.000 kr.Brunabótamat60.150.000 kr.
Skráð hjá
Eignaver fasteignasala ehf.
HeimilisfangHafnarstræti 97 (Krónan), 600 AkureyriSími460-6060

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 22 myndir

Upp ↑