fasteignasölur.is
Laugarnesvegur 106
1 af 12

Um eignina

Þorsteinn Gíslason lgfs. og RE/MAX kynna: Frábær kaup !! Vel skipulögð 4ra herbergja íbúð með útsýni, miðsvæðis í Reykjavík (Laugardalnum). Íbúðin er á 3.hæð í góðu húsi við Laugarnesveginn. Eignin skiptist í: Forstofuhol, eldhús, rúmgóða stofu, 3 x svefnherbergi og baðherbergi með tengi fyrir þvottavél. Í sameign er sér geymsla sem fylgir íbúðinni ásamt sameiginlegu þvottaherbergi og hjóla- og vagnageymslu. Góð bílastæði eru fyrir framan húsið og leikvöllur við austurgaflinn. 

Allar nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Gíslason lögg.fasteignasali í síma 694-4700 eða steini@remax.is

Nánari lýsing eignar: 
Forstofuhol:
Komið er inn í gott hol með flísum á forstofunni og endurýjuðu harðparketi á þeim hluta gólfflatarins sem liggur að öðrum rýmum eignarinnar. Innfeldir fataskápar eru í forstofunni. 
Eldhús: Eldhúsið er í sér rými. Innrétting er í U með neðri skápum. Fyrir ofan innréttinguna eru efri skápar á einn vegg, gluggi við annan og hilla á þann þriðja. Gott rými er fyrir borðkrók. Flísar eru á gólfi. 
Stofa + borðstofa: Stofurýmið er gott með gluggum á tvær hliðar. Endurnýjað harðparket er á gólfi. Útsýni er til vesturs yfir sjóinn. Gengið er út á útsýnissvalir frá stofunni. 
Baðherbergi: Baðherbergið er með flísum á gólfi og á veggjum við votrými. Hvít innrétting er undir vaskaborði. Spegill er á vegg við innréttinguna. Sturta er í rýminu með hlöðnum veggjum, flísalögð. Salernð er upphengt og vatnskassi flísalagður. Tengi er fyirr þvottavél og þurrkara á baðherberginu. Einnig er sameiginlegt þvottahús í sameign, í kjallara hússins. 
3 x svefnherbergi: Öll herbergin eru með harðparketi á gólfi. Tvö af herbergjunum eru með fataskápum. 
Geymsla: í sameign er geymsla sem fylgir íbúðinni. Geymslan er skráð 6,5 m2

Allar nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Gíslason lögg.fasteignasali í síma 694-4700 eða steini@remax.is

 

Laugarnesvegur 106

105 Reykjavík
69.900.000 kr.783 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1956TegundFjölbýlishúsStærð89,3 m²Herbergi4FasteignanúmerF20159761Fasteignamat71.000.000 kr.Brunabótamat43.400.000 kr.
Skráð hjá
RE/MAX
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 12 myndir

Upp ↑