1 af 14
Um eignina
Jöfur atvinnuhúsnæði s. 534-1020 kynnir:
Til leigu mjög vandað 151,6 m² iðnaðar- og skrifstofuhúsnæði á tveimur hæðum við Tunguhellu 10V í Hafnarfirði. Laust strax!Nánari lýsing:
Neðri hæð: Vinnusalur með stórri iðnaðarhurð (4,0 x 4,35m.) með rafmagnsopnun og inngönguhurð, kvarts epoxý á gólfi og flísar. Kaffiaðstaða með gluggum og opnanlegu fagi, 60x60 cm. flísar á gólfi og veggjum. Skápainnréttingar með borðplötu og vaski. Skolvaskur og 2 hitastýrð tæki. Wc með speglaskáp, vegghengdu salerni og glugga með opnanlegu fagi. Brunaútgangur að aftanverðu hússins og stigi upp á efri hæð.
Efri hæð: Stálstigi upp á efri hæð og hringstigi með sérinngangi að aftanverðu. Herbergi/ skrifstofa með glugga yfir vinnusal. Hurð inn í stúdíó með góðri eldhúsinnréttingu, helluborði, tauþvottavél og ísskáp, og gluggum með opnanlegu fagi. Geymslurými / herbergi með rennihurð. Baðherbergi með speglaskáp, vegghengdu salerni og sturtu. Brunútgangur niður hringstiga ásamt fellistiga að utanverðu. Vinilparket á gólfi. Rýmið er með loftskiptiútbúnaði.
- Gólfhiti á neðri hæð, hefðbundið ofnakerfi á efri hæð.
- Skilveggir á milli eignarhluta eru byggðir úr 120 mm. timburgrind, c/c 60 cm. er klæðist með plötuklæðningu beggja vegna; 1x 12 mm. spónaplötur og 1x12 mm. gips hvoru megin og einangrað með 120 mm. steinull.
- Undirstöður og botnplata eru staðsteypt með burðarmiklum gólfum.
- Meginburðargrind hússins er úr límtré með innsteyptum festingum. Allt milliburðarvirki og þakásar er úr límtré. Allar stálfestingar eru heitgalvaníseraðar.
- Útveggja- og þakeiningar eru af gerðinni "QuadCore" frá Kingspan í Englandi.
Húsnæðið er án virðisaukaskattskvaðar.
Leiguverð: 495.000 kr. (vsk. leggst ekki við leigufjárhæðna) með hita og rafmagni. Leigist eingöngu saman, þ.e. efri og neðri hæð.
Um er að ræða glæsilegt bil þar sem engu er til sparað og þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Már Karlsson löggiltur fasteignasali í síma 897 7086 tölvupóstur hmk@jofur.is
Hafðu beint samband við starfsmenn Jöfurs:
Bergsveinn Ólafsson löggiltur fasteignasali - 863-5868
Helgi Már Karlsson löggiltur fasteignasali - 897-7086
Ólafur Jóhannsson löggiltur fasteignasali - 824-6703
Magnús Kristinsson löggiltur fasteignasali - 861-0511
Kynntu þér fleiri eignir og þjónustu Jöfurs atvinnuhúsnæðis á www.jofur.is
Verðsaga
1 þinglýstur kaupsamningurÍ sölu núnaÁsett verð · Jöfur atvinnuhúsnæði
495.000 kr.3 þ./m²
−98,8% á 2 árum
30. desember 2024Fyrsta sala
40.500.000 kr.440 þ./m²
Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Tunguhella 10V
221 Hafnarfjörður
TegundAtvinnuhúsnæðiStærð151,6 m²Baðherb.2
495.000 kr.3 þ./m²
Byggingarár2025InngangurTveir inngangarFasteignanúmerF2532875Fasteignamat34.300.000 kr.Brunabótamat35.750.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 14 myndir
Upp ↑












