fasteignasölur.is
Hátún 4
Opið hús í dag kl. 18:15–18:45
1 af 28

Um eignina

BJÖRT OG FALLEG 3JA HERB. ÚTSÝNISÍBÚÐ Á 7. HÆÐ Í MIÐBÆ REYKJAVÍKUR - 105 REYKJAVÍK.

Samkvæmt skráningu HMS, fasteignaskrá er birt flatarmál eignarinnar 77,3 fm.

Um er að ræða íbúð á 7. hæð í níu hæða lyftuhúsnæði byggðu árið 1960.
Gengið er inn í rúmgott forstofuhol sem skiptir íbúðinni upp, lítil geymsla og baðherbergið er til hægri við inngang. Til vinstri í holinu er minna svefnherbergið. Beint inn af holinu er eldhúsið og rúmgóð stofan til vinstri en úr henni er gengið til vinstri inn í stærra svefnherbergið. Gengið er úr stofunni út á svalir með glæsilegu útsýni til suðvesturs og líka niður í flóann.

Forstofuhol: Rúmgott og flísar og parket á gólfum.
Stofa: Björt og rúmgóð með fallegu útsýni, parket á gólfi.
Eldhús: Eldri innrétting með góðu skápaplássi, nýlegur bökunarofn, op inn að stofu, lítil uppþvottavél sem fyglir, dúkur á gólfi og gluggi.
Baðherbergi: Skápainnréttingar við vask, sturtuklefi, dúkur á gólfi og flísar á veggjum.
Svefnherbergin: Tvö rúmgóð herbergi með parketi á gólfum, innbyggður fataskápur er í minna herberginu.
Geymslur: Góð flísalögð geymsla er innan íbúðar við inngang, en sér geymsla fylgir íbúðinni á jarðhæð. 

Sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi sem fáir nota er á jarðhæð og einnig sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

- Ljósleiðari er komin inn í íbúðina.
- Næg bílastæði eru staðsett á bílaplani sem er staðsett fyrir framan húsið og hleðslustöðvar i götunni.

ATH! Það eru margir kostir við þessa eign. Nóg pláss á bílaplaninu. Það er stutt í flestar matvörubúðir bakarí og apótek. Íbúðin er björt og sólrík. Fallegt útsýni dag sem kvöld út yfir hafið. Laugardalurinn, World Class og Laugar í göngufæri. Mikil aukning í kaffihúsum og stutt í miðbæinn. Frábærar suðursvalir.

Allar nánari uppl. og skoðun veitir: Jóhann Friðgeir, lgf. GSM: 896-3038 e-mail: johann@hofdi.is

Hátún 4

105 Reykjavík
66.400.000 kr.859 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1960TegundFjölbýlishúsStærð77,3 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF20099972Fasteignamat65.550.000 kr.Brunabótamat39.600.000 kr.
Skráð hjá
Höfði Fasteignasala
HeimilisfangSuðurlandsbraut 52 108 Reykjavík, Suðuðurlandsbraut 52 ReykjavíkSími533-6050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 28 myndir

Upp ↑