fasteignasölur.is
Haukahlíð 5
1 af 30

Um eignina

2ja herb. íbúð í Haukahlíð 5 ásamt stæði í bílageymslu

RE/MAX og Þorsteinn Ólafs löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu fallega 2ja herb. íbúð á 2. hæð í Haukahlíð 5, 102 Reykjavík með stæði í upphitaðri bílageymslu. Vestursvalir með rafmagnshitara og svalalokun með útsýni í átt að Reykjavíkurflugvelli. Frábær staðsetning. Göngufæri í Háskólann í Reykjavík og Háskóla Íslands og í náttúruperlur s.s. Öskjuhlíð og Nauthólsvík.  Eign sem vert er að skoða.


Íbúðin skiptist í alrými, þ.e. stofu, borðstofu og eldhús, eitt svefnherbergi, rúmgott baðherbergi með tengi fyrir þvottavél.  Svalir til vesturs eru 4,9 m².  Íbúðinni fylgir sérgeymsla í kjallara og sér bílastæði í bílgeymslu. Íbúðin er 51,2  m² og þar af er góð geymsla, 3,7  m².  Haukahlíð 5 var byggð 2019. 

Nánari lýsing:
Forstofa: Forstofa er með fataskáp. 
Alrými skiptist í eldhús, stofu og borðstofu með útgengi á yfirbyggðar svalir.  Eldhúsið er með fallegri innréttingu. Keramik helluborð og blástursofn. Tæki eru frá Electrolux.
Stofa og borðstofa: Harðparket er á gólfi og útgengi á svalir. 
Svefnherbergi: Harðparket er á gólfi með góðu skápaplássim. 
Baðherbergi: Baðinnrétting með handklæðaofni. Salernið er upphengt. Hitastýrð blöndunartæki í sturtu. Flísalagt gólf og veggir. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Í húsinu er stigahús með lyftu sem gengur niður í bílageymslu og í geymsluna. 
Í húsinu er stigahús með lyftu sem gengur niður í bílageymslu. Húsið er einangrað að utan og klætt með málmklæðningu
Bílastæði í upphitaðri bílageymslu.  

Haukahlíð 5 er glæsilegt fjöleignarhús á Hlíðarendasvæðinu, steinsnar frá miðbæ Reykjavíkur, en utan skarkala, sem gjarnan fylgir búsetu í miðbæ. Staðsetningin er í nálægð útivistarsvæðanna í Öskjuhlíð og Nauthólsvík og í göngufæri við háskóla.  Knattspyrnufélagið Valur er með sína íþróttaaðstöðu í næsta nágrenni. Einnig er stutt í miðbæ Reykjavíkur og verslunarkjarna eins og Kringluna.

Nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Ólafs lögg. fasteignasali í síma 842-2212, to@remax.is.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. RE/MAX bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af löggiltum fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar. 
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu 69.900 m. vsk. 

Haukahlíð 5

102 Reykjavík
62.900.000 kr.1.229 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár2019TegundFjölbýlishúsStærð51,2 m²Herbergi2InngangurSameiginlegurBílskúrFasteignanúmerF25055011Fasteignamat62.250.000 kr.Brunabótamat41.170.000 kr.
Skráð hjá
RE/MAX
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 30 myndir

Upp ↑