fasteignasölur.is
Fjóluás 4
1 af 54

Um eignina

Fasteignasalan TORG kynnir: Fjölskylduvænt raðhús á tveimur hæðum með bílskúr í Ásahverfinu í Hafnarfirði. Alls er húsið skráð 250,2fm, og skiptist í efri og neðri hæð, ásamt góðum bílskúr, þar af skráður 29,1fm. Mikið útsýni úr stofu. Góður sólpallur til suðurs.   Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Gunnlaugsson, fasteignasali í GSM: 898-6106 eða sigurdur@fstorg.is

Sækja söluyfirlit HÉR
Nánari lýsing: Komið er inn í góða forstofu með skápum.
Gestasalerni er við forstofu.
Eitt svefnherbergi er á efri hæðinni. 
Aðalrými: Eldhús og stofa í björtu alrými með glæsilegu útsýni og aukinni lofthæð. Eldhúsið er með hvítri innréttingu og stórri eyju, stæði fyrrir tvöfaldan ísskáp. Útgengt á svalir og einnig frá borðstofu út á sólpall með heitum potti úr alrýminu. Frá aðalrými er stigi niður á neðri hæð.
Bílskúr: Innangengt er í bílskúr úr alrými efri hæðar. Terrazzogólfi, hiti, rafmagn, vatn og hurðaopnari. 
Neðri hæð, svefnbergi: tvö barnaherbergi, og hjónaherbergi með baðherbergi og útgengi út í garð. Innaf hjónaherberginu er rúmgott baðherbergi með sturtu og einnig fataherbergi/skápasvæði. 
Þvottahús með miklu skápaplássi og stæði fyrir vélar í vinnuhæð. Annað baðherbergi er einnig á hæðinni með baðkari og sturtu. 
Sjónvarpshol er frá gangi. 
Garður: Lóðin er snyrtilega frágengin með terrazzosteyptu bílaplani, sólpall með heitum potti og grassvæði bakatil.

Að sögn seljanda hefur húsið verið talsvert endurnýjað undanfarin ár, meðal annars;
- Nýtt rafmagn á allri efri hæð og einnig lýsing, hönnuð af Lumex
- Dúkaloft á alla efri hæð, með skuggafúgum, hannað af Lumex
- Nýr steinn í eldhúsi, Granít frá S-Helgason ásamt granít hillum í eldhúsi með lýsingu
- Íslenskt stuðlaberg hleðsla, hlaðið á vegg í anddyri og niður með stiga
- Nýjar sérsmíðaðar spónlagðar innihurðar á efri hæð, gereftislausar í hæð 240 cm
- Nýjar sérsmíðaðar útidyrahurðar við inngang
- Baðherbergi innaf hjónaherbergi endurnýjað
- Milliloft í bílskúr, ósamþykkt auka geymsla.
- Nýbúið að loka fyrir allar lagnir inni í bílskúr með snyrtilegum þjónustuhurðum
- Nýtt Ajax öryggis- og myndavélakerfi, getur fylgt með eftir nánara samkomulagi
- Búið að skipta um þak, þ.e.a.s. nýtt þakjárn, pappi og nýjar þakrennur og niðurfallsrör, timbur var allt skoðað og leit út eins og nýtt
- Ný flísalagðar svalir
- Flísar í anddyri, íslenskar stuðlabergsflísar
- Svart steinsteypt terrazzó gólf í  bílskúr og á bílaplani.
- Pallur að framanverðu er 3ja ára gamall með harðvið.
- Parket uppi er niðurlímt eikar parket, neðri hæð er fljótandi eikar parket.

Um er að ræða mjög gott fjölskyldu-raðhús á tveimur hæðum með miklu útsýni, sólpalli með heitapotti og góðum bílskúr. Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Gunnlaugsson, fasteignasali í GSM: 898-6106 eða sigurdur@fstorg.is

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald kr.  3.800.- kr. af hverju skjali.  
3. Lántökukostnaður lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum.  
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. samningi.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sanneynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Fjóluás 4

221 Hafnarfjörður
174.900.000 kr.699 þ./m²
Rað-/parhús4 svefn · 3 bað
Byggingarár2008TegundRað-/parhúsStærð250,2 m²Herbergi6InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF23124464Fasteignamat148.100.000 kr.Brunabótamat122.400.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasalan TORG
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 54 myndir

Upp ↑