fasteignasölur.is
Hvannakur 2
1 af 9

Um eignina

Vel skipulagt og vel staðsett 248,1 fm. einbýlishús með innbúi á einni hæð auk innbyggðs bílskúrs við Hvannakur 2, 210 Garðabæ með góðu útisvæði, verönd með steyptum skjólveggjum og stórum heitum potti. Húsið stendur á skjólsælum stað.

Í húsinu er gólfhiti, gólfsíðir gluggar, vandaðar innréttingar og hátt til lofts. 

Í húsinu eru fimm rúmgóð svefnherbergi, tvö baðherbergi, opið alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu með útgengi út á verönd. Sjónvarpsstofa, gangur og anddyri með aðgengi inn í þvottahús, geymslu og bílskúr. Rafmagnshleðslustöð fylgir eigninni. 

Í húsinu er gólfhiti, gólfsíðir gluggar, vandaðar innréttingar og hátt til lofts. 

Eignin leigist frá 15. janúar 2027 til 15. desember 2027.

Eingöngu reglusamir og ábyrgir leigutakar koma til greina. 

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali og leigumiðlari í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is


 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Hvannakur 2

210 Garðabær
950.000 kr.4 þ./m²
Einbýlishús5 svefn
Byggingarár2006TegundEinbýlishúsStærð248,1 m²Herbergi6BílskúrFasteignanúmerF22890761Fasteignamat263.250.000 kr.Brunabótamat141.250.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 9 myndir

Upp ↑