fasteignasölur.is
Dunhagi 18
Opið hús í dag kl. 17:00–17:30
1 af 24

Um eignina

Guðný Ösp, lgf., s. 665-8909 og fasteignasalan TORG kynnir fallega og bjarta 2ja herbergja íbúð á annarri hæð í endurnýjuðu lyftuhúsi við Dunhaga 18 í Vesturbæ.

- Að sögn seljanda hefur húsið verið nýlega endurnýjað miklu leiti að innan sem utan.
- Stórar svalir 13,9 m2 sem liggja fyrir framan alla íbúðina og snúa í suð-vestur með fallegu útsýni í átt til sjávar og að grænu svæði.
- Á lóðinni eru sameiginleg bílastæði fyrir húsið.
- Göngufæri er í matvörubúðir, skóla, kaffi Vest, Vesturbæjarlaug og helstu þjónustu í 107 Reykjavík.


Skv. fasteignayfirliti HMS er birt stærð eignarinnar samtals 48,2 m² og þar af er geymslan skráð 7,8 m2.  
Um er að ræða íbúð í lyftuhúsnæði sem hefur verið mikið endurnýjað, en íbúðin skiptist í andyri, samliggjandi eldhús og stofu með útgengi út á 13,9 m2 svalaverönd frá stofu, svefnherbergi, baðherbergi og sérgeymslu. Þvottahús er sameiginlegt í kjallara hússins.

Nánari lýsing: 
Forstofa: parket á gólfi og fataskápur.
Stofa: parket á gólfi, frá stofu er útgengt út á 13,9 m2 svalaverönd sem snýr í suð-vestur.
Eldhús: parket á gólfi, innrétting með góðu vinnu og- skápaplássi, eldhústæki frá AEG, uppþvottavél, ísskáp og frysti.
Svefnherbergi: (opið, en mjög auðvelt að loka af með rennihurð) er með fataskáp og parket á gólfi. Útgengt er frá svefnherbergi á svalaverönd. 
Baðherbergi: með flísum á gólfi og veggjum að hluta, "walk in" sturtu með sturtugleri, vaskaskáp, handklæðaofn og upphengdu salerni.
Þvottaherbergi er sameiginlegt ásamt hjóla- og vagnageymslu og staðsett í kjallara hússins.  

Um er að ræða nýlega og vel skipulagða tveggja herbergja íbúð á besta stað í vesturbæ Reykjavíkur, góð fyrstu kaup eða hagkvæm eining fyrir einstaklinga eða par.  

Allar nánari upplýsingar veitir: Guðný Ösp Ragnarsdóttir, lgf. s. 665-8909 eða gudny@fstorg.is 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:  Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila en 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða.
Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.  Umsýslugjald fasteignasölu, samkvæmt gjaldskrá. 
Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.  Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og  ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.  Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.  Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.  Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.



 

Dunhagi 18

107 Reykjavík
57.500.000 kr.1.193 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár1959TegundFjölbýlishúsStærð48,2 m²Herbergi2InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF252315117Fasteignamat60.600.000 kr.Brunabótamat33.750.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasalan TORG
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 24 myndir

Upp ↑