fasteignasölur.is
Vefarastræti 7-9
1 af 6

Um eignina

Borgir s. 588-2030 kynna:
Flotta íbúð á jarðhæð með stórum 132 fm sér garði  sem er lokaður með hliði fyrir þessa íbúð aðeins.
Aðkoma bæði frá sér inngangi í garðinum og sameiginlegum inngangi í húsið.
Stórt bílastæði í bílgeymslu sem er við hiliðina á íbúðinni ( ca 4 m á breidd) með heimahleðslustöð sem fylgir eigninni.
Stór geymsla inni í íbúðinni.
Steinveggur allt í kringum garðinn.
Íbúðin er: 
Komið er í breiðan gang þaðan sem gengið er í barnaherbergin, baðherbergið og geymslu.
Öðru megin gangs eru tvö góð svefnherbergi með skápum,  gluggar í vestur út í garðinn.
Gegnt herbergjum er rúmgóð geymsla ca 8 fm.
Baðherbergið er stórt og gott, flísalagt með sturtuaðstöðu, hvítum innréttingum  og  tengt fyrir þvottavél. Gráar flísar á gólfi, hvítar á veggjum.
Fyrir enda gangs fyrst til vinstri er gengið í aðal svefnherbergið sem er með skápum og þar gluggi í suður út í garðinn.
Eldhús og stofa eru í alrými sem er með stórum gluggum út í garðinn í suður og vestur.
Eldhúsið er opið með hvítum HTH innréttingum , AEG bakarofn með sjálfhreinsikerfi og aðstoðarkerfi fyrir matargerð. AEG spanhelluborð.
Stofan er björt og þaðan gegnt út á hellulagða verönd í suður.
Garðurinn er þakinn grasflöt en einnig má finna þar plöntur..
Gólfefni er Pergo parket, einnig undir skápum í herbergjum.
Gengið er í bílskýlið frammi á gangi við hliðina á íbúðinni og stæðið sem fylgir er þar fyrsta stæðið á móti innganginum.
Hleðslutæki í stæðinu.
Fjórar sameiginlegar hleðslustöðvar húsfélagsins er að finna bæði bak við og fyrir framan húsið vestan megin.
Leiktæki í garði aftan við húsið.
Helgafellsskóli er í næsta húsi þar sem er bæði leik og grunnskóli.

Nánari upplýsingar veitir Ægir s. 896-8030 eða aegir@borgir.is

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Vill Borgir því skora væntanlega kaupendur á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 mvsk.

Vefarastræti 7-9

270 Mosfellsbær
85.000.000 kr.833 þ./m²
Fjölbýlishús1 bað
Byggingarár2017TegundFjölbýlishúsStærð102,1 m²Herbergi4InngangurSérinngangurBílskúrLyftaFasteignanúmerF23587821Fasteignamat74.450.000 kr.Brunabótamat70.400.000 kr.
Skráð hjá
Borgir
HeimilisfangSkipholt 50c, 105 ReykjavíkSími588-2030

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 6 myndir

Upp ↑