fasteignasölur.is
Fjölnisvegur 16
1 af 61

Um eignina

EINSTÖK EIGN VIÐ FJÖLNISVEG Í ÞINGHOLTUNUM - EIN EFTIRSÓTTASTA GATA BORGARINNAR. TVÖ FASTANÚMER OG INNRÉTTAÐUR BÍLSKÚR!

Samkvæmt skráningu HMS - Fasteignamati er birt flatarmál eignarinnar 351,2 fm.

Eignin er skráð annars vegar sem neðri sérhæð og kjallari ásamt bílskúr merkt 0101 og hins vegar efri sérhæð merkt 0201 með sitt hvort fasteignanúmerið. Húsið er byggt árið 1936 og bílskúrinn 1942. Neðri hæðin og kjallarinn er skráð samtals 206,9 fm. og bílskúrinn 35,0 fm., efri hæðin er skráð 109,3 fm.

Nánari lýsing, neðri hæð og kjallari: 
Gengið er inn í flísalagða forstofu, inn af henni er stórt parketlagt anddyri og gangur, til vinstri er stigagangur niður í kjallarann en til hægri við innganginn er bjart, rúmgott herbergi. Gengið er inn gang að stofunum sem eru þrjár, allar parketlagðar. Eldhúsið er flísalagt, rúmgott til vinstri við ganginn en hægt er að ganga inn í það á tvenna vegu, gott skápapláss í fallegri innréttingu. Hægt er að ganga út í garðinn úr borðstofunni. Í kjallara eru þrjú herbergi, gangur, stórt fataherbergi, tvö baðherbergi, annað þeirra með þvottahúsi, gólfefni kjallara er parket og marmaraflísar. Lítil forstofa er einnig í kjallara þar sem útgangur er í garðinn.
Nánari lýsing, efri hæð:
Gengið er inn í rúmgóða flísalagða forstofu með sisal teppi í stigagangi upp á hæðina. Gott parketlagt hol er þegar upp er komið með útgangi út á svalir. Stórt parketlagt herbergi er úr holinu, en parketlagður gangur er inn af tvöfaldri stofu. Annað stórt svefnherbergi er í norðaustur horninu með góðum fataskápum og gluggum á báðum útveggjum. Baðherbergi og eldhús er til vinstri í ganginum með flísum á gólfum. Niðurdreginn góður stigi er upp í risloftið sem er með glugga, búið að klæða og innrétta.
Nánari lýsing, bílskúr:
Búið er að útbúa studio íbúð á smekklegan hátt í bílskúrnum, lítið flísalagt baðherbergi með sturtuklefa, flísar við fremra rými en teppi eru á innra rýminu með litlum svefnkrók og stofu. Lítil eldhúsinnrétting er í miðju rýminu.
 
- Fallegt útsýni er frá húsinu. 
- Fasteignanúmer eignanna eru 200-9145 og 200-9146.
- Aukin lofthæð á efri og neðri hæð, ekki full lofthæð í kjallara.
- Lóðin er fullfrágengin með fallegum lokuðum og skjólgóðum suðvestur garði og veröndum, skráð 675,4 fm og fengið eðlilegt viðhald.
- Fjórar geymslur (stórt innréttað háaloft, heit geymsla með sérinngangi í bílskúrshlið, köld geymsla í kjallara og garðgeymsla).

Að sögn eigenda hefur eignin fengið gott viðhald í gegnum tíðina, en árið 2013 var nýtt parkett sett á efri hæð, skipt um alla glugga á efri og neðri hæð og einn kjallaraglugga, útidyratröppur flotaðar, nýjar útidyrahurðir á bílskúr og kjallara og hurð í tréverki sem lokar af lóðina, einnig voru skólplagnir endurnýjaðar það árið. Árið 2014 var settur nýr fataskápur á efri hæð, ný borðplata í eldhúsi á efri hæð og þétt í kringum skorstein. Árið 2016 var byggð útigeymsla og þakrennur yfirfarnar og skipt um það sem þurfti. Árið 2020 voru gluggar lakkaðir að innan, gluggar málaðir að utan, baðherbergið í kjallara endurnýjað og þar með talið allar pípulagnir, alveg að inntaki, eldhús á neðri hæð sprautulakkað og eldhús útbúið i bílsskúr. Árið 2024 voru svalir dúklagðar og málaðar. Árið 2025 var skipt um kaldavatnsinntak, skipt um þakglugga, frágangur í kringum rafmagnstöflu, skipt um glugga í bílskúr og gert var við allt sem þurfti í þaki og þaksperrur endurnýjaðar.

Eignin er í miðbæ Reykjavíkur, göngufæri í allar áttir og stutt í leikskóla, skóla og helstu þjónustu.

Allar nánari uppl. og skoðun veitir:  Jóhann Friðgeir, lgf. GSM: 896-3038 e-mail: johann@hofdi.is

Fjölnisvegur 16

101 Reykjavík
Tilboð
Einbýlishús6 svefn · 3 bað
Byggingarár1936TegundEinbýlishúsStærð351,2 m²Herbergi11InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF20091451Fasteignamat308.100.000 kr.Brunabótamat169.550.000 kr.
Skráð hjá
Höfði Fasteignasala
HeimilisfangSuðurlandsbraut 52 108 Reykjavík, Suðuðurlandsbraut 52 ReykjavíkSími533-6050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 61 myndir

Upp ↑