fasteignasölur.is
Lækjarbrekka 10
1 af 49

Um eignina

Lækjarbrekka 10, Syðri-Brú, 805 Grímsnes-og Grafningshreppi. Sumarhús með möguleika á rekstrarleyfi sem hentar fyrir útleigu en búið er að gera breytingu á deiliskipulagi jarðarinnar þannig að kaupendur geta nýtt húsið fyrir rekstur/útleigu allan ársins hring. Hitaveita, heitur pottur, glæsilegt útsýni. Í þessu húsi eru hitalagnir í gólfi. Þetta svæði er lokað með rafmagnshliði (símahlíð). 

Fasteignaland kynnir: Fullbúið sumarhús sem stendur á 4.477 fm eignarlóð í landi Syðri Brúar í Grímsnes-og Grafningshreppi. Húsið er 82,9 fm að stærð og var byggt árið 2019.

Húsið skiptist: Forstofa með flísum á gólfi (flísaparket) fatahengi. Hol með flísum á gólfi og góðu skápaplássi.  Þrjú herbergi með flísum á gólfi. tvö með góðu skápaplássi. Baðherbergi með flísum á gólfi og hluta til á veggjum,  fallegri hvítri innréttingu og sturtu (walk in). Útgengi út á suður sólpall. Eldhús og stofa í sama rými með físum á gólfi og útgengi út á sólpall. Eldhús með fallegri hvítri innréttingu og vönduðum tækjum.   

Geymsla: Gengið inn af sólpalli.  Flísalögð með góðu skápaplássi.
Stór sólpallur með girðingu og skjólgirðingu. Heitur pottur.

Góð aðkoma og næg bílastæði.  
 
Lokað svæði (símahlið). Möguleiki er að fá búslóð með í kaupum á eigninni.  
Árgjald í félag sumarhúsaeiganda á svæðinu er kr. 40.000 er nýtt í vegi og símahlið.

Stutt er til þekktra staða á Suðurlandi, Skálholts, Þingvalla, Laugarvatns, Geysis, Gullfoss og Kersins. Stutt er í veiði, sundlaug, golfvöll, íþróttavöll og fallegar gönguleiðir. Selfoss er aðeins í 16 km fjarlægð og því stutt í alla þjónustu. Frá Reykjavík eru aðeins um 70 km sé ekið um Hellisheiði. Styttra um Nesjavallaveg.

Upplýsingar gefa: 
Heimir Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali, s. 893-1485, netfang: heimir@fasteignaland.is
Jón Smári Einarsson, löggiltur fasteignasali, s. 860-6400, netfang: jonsmari@fasteignaland.is

Lækjarbrekka 10

805 Selfoss (dreifbýli)
59.900.000 kr.723 þ./m²
Sumarhús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2019TegundSumarhúsStærð82,9 m²Herbergi4FasteignanúmerF234508111Fasteignamat49.750.000 kr.Brunabótamat54.050.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifan 2, 108Sími599-6700

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 49 myndir

Upp ↑