fasteignasölur.is
Lækjarbrekka 5
1 af 40

Um eignina

Lækjarbrekka 5, Syðri Brú, 805 Selfoss. Sumarhús með möguleika á rekstrarleyfi sem hentar fyrir útleigu á sumarhúsi  en búið er að gera breytingu á deiliskipulagi jarðarinnar þannig að kaupendur geta nýtt húsið fyrir rekstur/útleigu allan ársins hring, (gistileyfi II). Lokað svæði með rafmagnshliði (símahlið). Hitaveita og heitur pottur.

Fasteignaland kynnir: Sumarhús ásamt geymsluskúr við Lækjarbrekku 5 í landi Syðri Brúar í Grímsnes-og Grafningshreppi.  Húsið er skráð 68,2 fm ásamt ca. 15 fm geymslu. Húsið var byggt árið 2005.  Hitaveita er i húsinu og ofnakerfi.  Stór sólpallur með heitum potti (hitaveitupottur). Tvö gróðurhús eru lóðinni. Lóðin er 3.365 fm eignarlóð með fallegu útsýni.  Lækur rennur við húsið.

Lýsing á eign: Forstofa með flísum á gólfi, fatahengi og góðu skápaplássi. Tvö herbergi með parketi á gólfi og góðu skápaplássi. Baðherbergi með flísum á gólfi, viðarinnréttingu, sturtuklefa og útgengi út á verönd. Stofan og eldhúsið eru í sama rými með góðri lofhæð og parketi á gólfi, útgengi út á sólpall. Eldhúsið er með viðarinnrétttingu ofni, helluborði með fjórum hellum og uppþvottavél.

Geymsla: Ca. 15 fm og nýtt fyrir garðhúsgögn.
Tvö gróðurhús eru lóðinni ásamt skýli þar sem grill er staðsett.

Stór sólpallur með skjólgirðingu að hluta  Nýlegur heitur pottur (hitaveitupottur).
Möguleiki er að fá hluta að innbúi með í kaupum á eigninni.
Góð aðkoma og næg bílastæði. Lokað svæði (símahlið).

Árgjald í félag sumarhúsaeiganda á svæðinu er um kr. 40.000.  

Stutt er til þekktra staða á Suðurlandi, Skálholts, Þingvalla, Laugarvatns, Geysis, Gullfoss og Kersins. Stutt er í veiði, sundlaug, golfvöll, íþróttavöll og fallegar gönguleiðir. Selfoss er aðeins í 16 km fjarlægð og því stutt í alla þjónustu. Frá Reykjavík eru aðeins um 70 km sé ekið um Hellisheiði. Styttra um Nesjavallaveg.

Upplýsingar gefa: 
Heimir Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali s. 893-1485, netfang: heimir@fasteignaland.is
Jón Smári Einarsson, löggiltur fasteignasali, s. 860-6400, netfang: jonsmari@fasteignaland.is

Lækjarbrekka 5

805 Selfoss (dreifbýli)
44.900.000 kr.658 þ./m²
Sumarhús
Byggingarár2005TegundSumarhúsStærð68,2 m²Herbergi3FasteignanúmerF22957364Fasteignamat40.600.000 kr.Brunabótamat44.250.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifan 2, 108Sími599-6700

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 40 myndir

Upp ↑