fasteignasölur.is
Melhúsasund 10
1 af 45

Um eignina

Melhúsasund, Hrauborgir, Grímsnes-og Grafningshreppi:  Lokað svæði með rafmagnshliði (símahlið). 

Fasteignaland kynnir: Melhúsasund 10 í Hraunborgum í Grímsnes-og Grafningshreppi.  Um ræða 62,2 fm sumarhús auk millilofts ca. 22 fm. Gestahús sem er skráð 27 fm.  Á lóðinni er einnig ca. 12 fm skáli sem staðsettur er á sólpalli. Skýli eða geymsla er einnig á lóðinni ásamt gróðurhúsi. Lóðin er 5000 fm leigulóð gróin og kjarri vaxin. Í Þessu húsi er hitakútur fyrir neysluvatn og rafmagnsofnar. Þetta er hitaveitusvæði og því möguleiki að taka inn hitaveitu. 

Lýsing á eign: Forstofa með flísum á gólfi, fatahengi og góðu skápaplássi.  Hol með  parketi á gólfi og góðu skápaplássi. Tvö herbergi með parketi á gólfi. Baðherbergi er flísalagt í gólf og gólf með fallegari innréttingu og sturtuklefa. Tengi fyrir þvottavél. Stofan og eldhúsið er í sama rými með góðri lofthæð og parketi á gólfi.  Stofan er með útgengi út á sólpall.  Eldhúsið er með fallegri viðarinnréttingu og vönduðum tækjum.

Gestahús: Tvískipt, annar hlutinn skiptist í herbergi með parketi á gólfi og eldhúskrók með helluborði með tveimur hellum og ísskáp.  Baðherbergi með flísum á gólfi og útgengi út á sólpall.  Hinn hlutinn er geymsla með innkeyrsluhurð og hentar fyrir golfbíl eða fjórhjól.

Skáli:  Ca. 12 fm staðsettur á sólpalli með flísum á gólfi.

Stórir og miklir sólpallar með girðingu og skjólgirðingu.  Heitur pottur með vatnshitara.

Á lóðinni er gróðurhús og skýli.

Þetta er falleg og vel um gengin eign.  Góð aðkoma og næg bílastæði.

Samhliða sölu á eigninni verður gerður nýr lóðarleigusamningur til 50 ára.   

Hluti af búslóð getur fylgt með í kaupum á eigninni.

Inn á svæðinu er þjónustumiðstöð, sundlaug og hjólhýsasvæði. 
 
Nánasta umhverfi býður upp á mikla fjölbreytni og sundlaug að Minni Borg sem er í ca. 5 km. fjarlægð.
Stutt er í alla þjónustu.Í þessu skipulagða sumarhúsahverfi er sundlaug, 9 holu golfvöllur og 18 holu golfvöllur er í  Kiðjabergi.

Upplýsingar gefa: 
Heimir Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali s. 893-1485, netfang: heimir@fasteignaland.is
Árni Björn Erlingsson, löggiltur fasteignasali s. 898-0508 netfang: arni@fasteignaland.is
Jón Smári Einarsson, löggiltur fasteignasali s. 860-6400, netfang: jonsmari@fasteignaland.is

Melhúsasund 10

805 Selfoss (dreifbýli)
52.900.000 kr.593 þ./m²
Sumarhús
Byggingarár2000TegundSumarhúsStærð89,2 m²Herbergi3FasteignanúmerF23009376Fasteignamat63.050.000 kr.Brunabótamat55.950.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifan 2, 108Sími599-6700

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 45 myndir

Upp ↑