fasteignasölur.is
Rjúpnavegur 6
1 af 59

Um eignina

Rjúpnavegur í landi Efri-Reykja, 801 Bláskógabyggð. Hitaveita, heitur pottur.

Fasteignaland kynnir: Sumarhús við Rjúpnaveg i landi Efri-Reykja. Um er að ræða 69,0 fm ásamt ca. 10 auka húsi sem skipt hefur verið upp og er nýtt sem geymsla og baðherbergi. Húsið var byggt árið 1987 og byggt við það árið 2023 og stækkað um ca. 20 fm.
Lóðin er leigulóð 2.578 fm kjarri og skógi vaxin.  Stór sólpallur með skjólveggjum og heitum  potti.
Lýsing á eign: Forstofa með parketi á gólfi og góðu skápaplássi/fatahengi. 4 svefnherbergi með parketi á gólfi. Eitt með góðu skápaplássi. Baðherbergi með dúk á gólfi, viðarinnréttingu og sturtuklefa. Hol með parketi á gólfi. Stofan er með góðri lofthæð, parketi á gólfi og útgengi út á sólpall. Eldhús með flísaparketi á gólfi, fallegri viðarinnréttingu og sambyggðri eldavél með uppþvottavél.
 
Af sólpalli er gengið inn í geymslu (þvottahús) með dúk á gólfi. Geymslan er tvískipt og er í hinum hlutanum baðherbergi með dúk á gólfi, plötum á veggjum og sturtuklefa.
 
Lóðin er 2.578 fm leigulóð,kjarri og skógi vaxin.. Á lóðinni eru leiktæki og körfuboltavöllur.

Góð aðkoma og næg bílastæði. 

Þetta er fallegt og vel um gengið hús.  Góð aðkoma og næg bílastæði.

Möguleiki er að fá hluta af innbúi með í kaupum á eigninni.

Svæðið er lokað með rafmagnshliðið (símahlið).

Árgjald í félag sumarhúsaeiganda á svæðinu er um kr. 15.000 á ári.

Hitaveita um kr. 160.000 á ári.
Lóðarleiga um kr. 150.000 á ári.

Stutt er til þekktra staða á Suðurlandi, Skálholts, Þingvalla, Laugarvatns, Geysis, Gullfoss og Kersins. Stutt er í veiði, sundlaug,golfvöll, íþróttavöll og fallegar gönguleiðir.
 
Upplýsingar gefa: 
Heimir Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali s. 893-1485, netfang: heimir@fasteignaland.is
Jón Smári Einarsson, löggiltur fasteignasali s. 860-6400, netfang: jonsmari@fasteignaland.is

Árni Björn Erlingsson, löggiltur fasteignasali s. 898-0508 netfang: arni@fasteignaland.is

 

Rjúpnavegur 6

806 Selfoss (dreifbýli)
46.300.000 kr.671 þ./m²
Sumarhús4 svefn · 2 bað
Byggingarár1987TegundSumarhúsStærð69 m²Herbergi5InngangurSérinngangurFasteignanúmerF220540410Fasteignamat39.050.000 kr.Brunabótamat47.850.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifan 2, 108Sími599-6700

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 59 myndir

Upp ↑