fasteignasölur.is
Selmýrarvegur 7 A
1 af 38

Um eignina

Selmýrarvegur 7, Grímsnes-og Grafningshreppi. Hitaveita og heitur pottur.

Fasteignaland kynnir: Sumarhús sem stendur á 5.000 fm eignarlóð við Selmýrarveg í landi Ásgarðs í Grímsnes- og Grafningshreppi.  Um er ræða 56,1 fm hús og byggt árið 1990 samkvæmt Húsnæðis-og mannvirkjastofnun. Húsið er skráð 56,1 fm auk millilofts, sem er ekki inn í fm tölu hússins. Í þessu húsi er hitaveita og lokað ofnakerfi. Gjöfull er við húsið sem heldur uppi þrýstingi á kerfinu. 

Lýsing á eign: Forstofa með parketi á gólfi og fatahengi. Þrjú svefnherbergi með parketi á gólfi. Eitt með góðu skápaplássi. Baðherbergi með parketi á gólfi, hvítri innréttingu og sturtuklefa. Stofan og eldhúsið í sama rými með góðri lofthæð og útgengi út á sólpall. Eldhús með viðarinnréttingu og vönduðum tækjum.

Milliloft: Gott milliloft með opnanlegu fagi. Gott geymslurými undir súð í hliðum millilofts.

Af sólpalli er gengið inn í geymslu þar sem inntök hússin eru.
Stór sólpallur með girðingu og skjólgirðingu. Heitur pottur. (pottastýring)

Vel hefur verið hugsað um sumarhúsið og skv. seljandi eftirfarandi m.a. verið gert síðastliðin ár:
  * Eldhús endurnýjað.
  * Ný gólfefni
  * Ný rotþró.
  * Allir gluggar yfirfarnir.
  * Ný pottastýring og útisturta.
  * Settur upp forðakútur fyrir hitaveituvatn og hita allar hitalagnir endurnýjaðar 2025.
  * Bílaplan endurnýjað og hluti lóðar þökulagður.

Búið er að gróðursetja talsvert af trjáplöntum. Góð aðkoma og næg bílastæði.
Möguleiki er að fá  hluta af búslóð með i kaupum á eigninni.
 
Stutt er til þekktra staða á Suðurlandi: Skálholts, Þingvalla, Laugarvatns, Geysis, Gullfoss og Kersins. Stutt er í veiði, sundlaug, golfvöll, íþróttavöll og fallegar gönguleiðir. Selfoss er aðeins í 16 km fjarlægð og því stutt í alla þjónustu. Frá Reykjavík eru aðeins um 70 km sé ekið um Hellisheiði. Styttra um Nesjavelli og Þingvallaleið.

Upplýsingar gefa: 
Heimir Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali, s. 893-1485, netfang: heimir@fasteignaland.is
Árni Björn Erlingsson, löggiltur fasteignasali, s 898-0598, netfang: arni@fasteignaland.is
Jón Smári Einarsson, löggiltur fasteignasali, s. 860-6400, netfang: jonsmari@fasteignaland.is

Selmýrarvegur 7 A

805 Selfoss (dreifbýli)
42.900.000 kr.765 þ./m²
Sumarhús3 svefn · 1 bað
Byggingarár1990TegundSumarhúsStærð56,1 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF22073038Fasteignamat38.350.000 kr.Brunabótamat28.650.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifan 2, 108Sími599-6700

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 38 myndir

Upp ↑