Um eignina
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 125,8 fm. og þar af er geymsla 6,4 fm. Bílastæði í bílakjallara er ekki inn í fermetratölu eignarinnar.
Nánari lýsing eignar
Forstofa með fataskáp og flísum á gólfi.
Gangur/hol með parketi á gólfi.
Eldhús er opið við stofu, falleg innrétting með nýjum flísum á milli skápa, gottt borðpláss, span helluborð, ofn, gufugleypir, innbyggð uppþvottavél, borðkrókur og gluggi til suðvesturs og suðausturs.
Stofa er rúmgóð og björt með stórum gluggum til suðurs. Rúmar vel borðstofuborð. Parket á gólfi. Útgengt er út á stóra viðarverönd til suðvesturs.
Hjónaherbergi rúmgott, með góðum fataskápum sem ná upp í loft og glugga til norðurs og austurs. Parket á gólfi.
Svefnherbergi II með góðum fataskápum sem ná upp í loft og glugga til austurs. Parket á gólfi.
Svefnherbergi III með góðum fataskápum sem ná upp í loft og glugga til norðurs. Parket á gólfi.
Baðherbergi með baðkari með sturtutækjum, flísalögð sturta með glerhurðum, góð innrétting við vask, upphengt salerni og gluggi. Flísar á veggjum og gólfi.
Þvottaherbergi með vélum í vinnuhæð, gott skápapláss, vaskur og flísar á gólfi.
Viðarverönd er rúmgóð og afgirt, með sauna og afar fallegum útsýni suðvesturs yfir golfvöll GKG, upp í Heiðmörk, að Vífilsstöðum og að Reykjanesinu.
Geymsla íbúðar er staðsett á jarðhæð innan hjóla- og vagnageymslu. Málað gólf, rafmagnstengill og loftun.
Bílastæði íbúðar í snyrtilegri bílageymsla með snjóbræðslu í rampi. Búið er að leggja fyrir hleðslustöð við hvert stæði.
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er rúmgóð með máluðu gólfi, glugga til suðvesturs og útgengi á baklóð.
Húsið að utan var málað að utan sumarið 2026.
Lóðin er frágengin, vel hirt og tyrfðri flöt.
Um er að ræða afar fallega og vel skipulagða eign á eftirsóttum og fjölskylduvænum stað í Salahverfi í Kópavogi. Golfvöllur GKG í næsta nágrenni. Stutt í alla verslun og þjónustu, göngu- og hjólaleiðir.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Þorrasalir 13
Staðsetning
Allar 46 myndir
Upp ↑












































