fasteignasölur.is
Ásatún 6 íbúð 302
Opið hús 15. sept. kl. 16:15–17:00
1 af 15

Um eignina

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Ásatún 6 íbúð 302 - Falleg og vel umgengin 2ja herbergja íbúð á 3. hæð/efstu í fjölbýli þar sem gengið er inn í íbúð af svölum - stærð 66,8 m²


Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. 
Á jarðhæðinni er sér geymsla og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Forstofa er með flísum á gólfi og spónlögðum eikar fataskáp. 
Eldhús, spónlögð eikar innrétting með flísum á milli skápa og dökkri bekkplötu. Stæði er í innréttingu fyrir ísskáp og uppþvottavél. 
Stofa og eldhús eru í opnu rými og með parket á gólfi. Úr stofu er gengið út á steyptar 11,8 m² vestur svalir.
Svefnherbergi er með parketi á gólfi og spónlögðum fjórföldum eikar fataskáp. Svefnherbergið er skv. teikningum 12,4 m² að stærð.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, spónlagðri eikar innréttingu, upphengdu wc og baðkari með sturtutækjum. 
Þvottahús/geymsla er við hliðina á forstofu, þar eru flísar á gólfi, bekkur með vask og opnanlegur gluggi. 

Annað
- Sér geymsla er á jarðhæðinni, skráð 5,2 m² að stærð.
- Gólfhiti er í allri íbúðinni.
- Fallegt eikar parket er á helstu rýmum og flísar á votrýmum. 
- Ljósleiðari er til staðar.
- Stutt í verslun, leik- og grunnskóla.
- Fallegt útsýni.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Ásatún 6 íbúð 302

600 Akureyri
51.000.000 kr.763 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár2010TegundFjölbýlishúsStærð66,8 m²Herbergi2InngangurSérinngangurFasteignanúmerF23107591Fasteignamat46.600.000 kr.Brunabótamat40.550.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHafnarstræti 19, 600 AkureyriSími466-1600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 15 myndir

Upp ↑