fasteignasölur.is
Súluhöfði 27
1 af 52

Um eignina

Þórhallur Biering, fasteignasali og Betri Stofan fasteignasala kynna í : Frábærlega staðsett einbýli á tveimur hæðum við Súluhöfða í Mosfellbæ. Skv. FMR er húsið samtals 401.6 fm. Þar af er bílskúr 40.5 fm.  Í dag eru þrjár íbúðir í húsinu og þar af er ein íbúð á jarðhæð á sér fastanúmeri 80.4 fm. Á baklóð er steypt um 14.5 fm hús þar sem er eldhúskrókur, alrými og baðherbergi.  Góðir pallar fyrir framan hús, til hliðar og á baklóð. 
Gengið inn á efri hæð  hússins inn í gott anddyri með fataskápum.Gestasnyrting. Þaðan komið inn í alrýmið þar sem er góð arinstofa og borðstofa. Frá stofu er útgegnt á góðar suður og vestur svalir.
Rúmgott eldhús er fyrir miðju hæðarinnar og opið inn í borðstofuna. Rúmgott hjónaherbergi með góðpum skápum. Tvö önnur svefnherbergi og rúmgott baðherbergi.
 Geymsluloft yfir tveimur svefnherbergjum. Mjög góður flísalagður bílskúr, 3. fasa rafmagn og rafhleðsla.  Fyrir framan bílskúr og aðalinngang er mjög rúmgott upphitað bílaplan. 
Neðri hæðin : 
Frá stofu er stigi niður á neðri hæðina þar sem er stofa, eitt svefnherbergi, baðherbergi með sturtu, stórt þvottahús og geymsla. Útgengt á verönd. 
Flottur bar í rýminu. Sunnnan megin (á teikningu garðgeymsla) er fín studióíbúð með sérinngangi.
Hægra megin við bílskúr er stigi niður með húsinu þar sem er sérinngangur í góða tveggja herbergja 80.4 fm íbúð. 
Timburpallar með skjólgirðingum og steyptur veggur á milli lóða.
Um er að ræða sérlega vandað og vel byggt hús á frábærum stað rétt við gölfvöllinn. 
Stutt í golfvöllinn, sundlaug og skóla. 
Allar nánari upplýsingar gefur:
Þórhallur Biering löggiltur fasteignasali í síma 896-8232 eða thorhallur@betristofan.is   

 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Súluhöfði 27

270 Mosfellsbær
295.000.000 kr.735 þ./m²
Fjölbýlishús7 svefn · 5 bað
Byggingarár2000TegundFjölbýlishúsStærð401,6 m²Herbergi10InngangurMargir inngangarBílskúrFasteignanúmerF22497651Fasteignamat296.600.000 kr.Brunabótamat189.150.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 52 myndir

Upp ↑