fasteignasölur.is
Torfufell 44
Opið hús 14. sept. kl. 17:00–17:30
1 af 27

Um eignina

Trausti fasteignasala kynnir í einkasölu:
Falleg og rúmgóð 4ra herbergja íbúð á 2. hæð í snyrtilegu fjölbýlishúsi við Torfufell 44.
Hún skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu og baðherbergi. Sérmerkt bílastæði fylgir eigninni. Snyrtileg sameign og stigagangur. 
Innbú fylgir.

Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands alls 96,8 fm. þar af er geymsla 4,6 fm.
 
Nánari lýsing:
Eldhús: snyrtileg innrétting, flísalagt gólf, uppþvottavél, ísskápur.
Þvottahús: innangengt úr eldhúsi, þvottavél.
Stofa: rúmgóð og björt með parket á gólfi, úr stofunni er gengið inn á yfirbyggðar svalir.
Hjónaherbergi: rúmgott með parket og fataskáp.
Barnaherbergi eru tvö og bæði með parket á gólfi.
Baðherbergi: flísar á gólfi, flísar á veggjum og innréttingar eru nýlegar.
Geymsla: er á jarðhæð, stærð 4,6 fm.

Bílastæðið er malbikað og á hver íbúð merkt stæði.
Snyrtileg sameign og hjólageymslur.
Eignaumsjón sér um húsafélagið. 
Stutt er í skóla, leikskóla, útivistarsvæði, verslanir og aðra þjónustu. 
 

Nánari upplýsingar veita:
Kristín María Stefánsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 837-1177 eða kristin@trausti.is
Katarzyna Kleinschmidt, aðstoðarmaður fasteignasala í síma 774-2730 eða katarzyna@trausti.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Torfufell 44

111 Reykjavík
62.900.000 kr.650 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár1974TegundFjölbýlishúsStærð96,8 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF20529671Fasteignamat59.350.000 kr.Brunabótamat50.500.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 27 myndir

Upp ↑