fasteignasölur.is
Bankastræti 3
1 af 24

Um eignina

Domus Fasteignasala á Norðurlandi vestra kynnir til sölu Bankastræti 3 – efri hæð á Skagaströnd.

Um er að ræða 55,1 fm íbúð á efri hæð í steinsteyptu húsi frá árinu 1947.

Endurbætur hafa verið hafnar á íbúðinni og hafa eldri innréttingar og tæki verið fjarlægð. Eignin býður því upp á spennandi tækifæri fyrir handlaginn aðila eða kaupanda sem vill ljúka framkvæmdum og móta íbúðina eftir eigin hugmyndum.

Miðað við núverandi skipulag er gert ráð fyrir eldhúsi, stofu, tveimur svefnherbergjum, baðherbergi og sér sturturými.

Framkvæmdir eru þegar hafnar á baðherbergi þar sem búið er að endurnýja salerni og handlaug ásamt því að flísaleggja gólf. Aðrar framkvæmdir eru ókláraðar og eignin selst í núverandi ástandi.

Hér getur verið um áhugavert verkefni að ræða fyrir réttan aðila, hvort sem horft er til eigin nota eða frekari uppbyggingar eignarinnar.

Áhugasamir kaupendur eru sérstaklega hvattir til að kynna sér ástand eignarinnar, framkvæmdir og fyrirliggjandi upplýsingar vel fyrir kaup.

Upplýsingar veita Friðrik Halldór Brynjólfsson löggiltur fasteignasali s 662-8034 fridrik@domus.is
eða Stefán Ólafsson hrl. löggiltur fasteignasali s 891-9425 sol@domus.is


Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Domus Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 71.920 kr.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.



 

Bankastræti 3

545 Skagaströnd
10.900.000 kr.198 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1947TegundFjölbýlishúsStærð55,1 m²Herbergi3FasteignanúmerF21387791Fasteignamat9.620.000 kr.Brunabótamat25.850.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangÞverbraut 1, 540 BlönduósSími662-8034

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 24 myndir

Upp ↑