Um eignina
Heimili Fasteignasala og Anna Sigurðardóttir fasteignasali kynna í einkasölu bjarta og skemmtilega 4ra herbergja íbúð með fallegu útsýni á efstu hæð í fallegu húsi við Bergþórugötu 23 í Reykjavík. Eignin skiptist í glæsilegt eldhús með eyju í opnu rými með borðstofu og stofu, 3 rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara í holi, Sér geymsla íbúðar er í kjallara ásamt hjólageymslu og sameiginlegu þvottahúsi. Eignin er stærri en birt stærð að grunnfleti þar sem hluti hennar er undir súð.
*** Vinsamlega bókið skoðun hjá Önnu Sigurðardóttur, löggiltum fasteignasala, sími 898-2017 netfang as@heimili.is ***
Nánari lýsing: Komið inn í bjart og fallegt alrými með glæsilegu nýlegu eldhúsi og eyju með helluborði og granít borðplötu, borðstofa og stofa með stórum glugga með stórkostlegu útsýni, dúkur á gólfi í eldhúsi en parket á stofu, borðstofu og herbergjum. Fallega endurnýjað baðherbergi með Fibo baðplötum, sturta og wc á vegg, vaskur í innréttingu og speglaskápur fyrir ofan. Fyrir framan baðherbergið eð innrétting fyrir þvottavél og þurrkara. Rúmgott hjónaherbergi með góðum skápum, tvö rúmgóð svefnherbergi, annað þeirra með svölum í norður. Miklar endurbætur voru gerðar við húsið árið 2017 þegar sameign var löguð og nýr hluti byggður við húsið með þremur nýjum íbúðum. Sér geymsla íbúðar, sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla eru í kjallara ásamt útgengi út í garð.
Eignin Bergþórugata 23 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 200-8241, birt stærð 86.3 fm.
Einstaklega vel staðsett og skemmtileg eign með mikla möguleika í fallegu húsi á vinsælum stað í 101 Reykjavík þar sem örstutt er í fjölskrúðugt mannlíf gamla miðbæjarins og í göngufæri við Austurbæjarskóla, Grænuborg leikskóla, Miðborg leikskóla og Sundhöllina eina vinsælustu sundlaug borgarinnar.
Sjón er sögu ríkari! Bókaðu einkaskoðun hjá as@heimili.is
Til fróðleiks!
Sundhöll Reykjavíkur við Barónsstíg er ein elsta sundlaug borgarinnar og eitt af þekktari mannvirkjum í miðborg Reykjavíkur. Hún sameinar sögulegt andrúmsloft og nútímalega aðstöðu eftir endurbætur síðustu ára. Þar eru innilaug, heitir pottar, kaldur pottur, sána og eimbað, einnig er gott útisvæði á þaksvölum með sólbekkjum. Sundhöllin er vinsæl meðal bæði íbúa og ferðamanna.
Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.
Bergþórugata 23
Staðsetning
Allar 39 myndir
Upp ↑





































