fasteignasölur.is
Borgarbraut 28
1 af 12

Um eignina

Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Lifum Heima fasteignasala kynna: Borgarbraut 28, 310 Borgarnesi. Falleg og uppgerð þriggja herbergja íbúð, með sérinngangi og sólpalli, á jarðhæð í tvíbýlishúsi.

** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@lifumheima.is 


Seljandi skoðar að taka ýmislegt upp í, bæði eignir, tæki og etv. fleira.


Íbúðin er 59,7 fm., á jarðhæð og skiptist í stofu, eldhús, tvö svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Sér inngangur er frá götuhlið. Eignin hefur fengið gott viðhald og er mikið endurnýjuð. Frábær fyrsta eign, góð staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. 

Nánar um eignina:
Eldhús: Innrétting með efri og neðri skápum, frístandandi eyju, helluborð og ofn og parketflísum á gólfi.
Stofa: Nett og björt með parketflísum á gólfi.
Svefnherbergi: Parketflísar á gólfi.
Herbergi: Parket á gólfi.
Baðherbergi: Snyrtileg innrétting, innangeng sturta með góðum sturtuhaus, upphengt salerni, tengi fyrir þvottavél og flísar á gólfi. 

Eignin var mikið endurnýjuð árin 2019-2021, m.a. farið í miklar framkvæmdir að utan þar sem húsið var múrað, málað, ný klæðning og einangrað að innan, drenað, sett ný aðalrafmagnstafla og skipt um raflagnir, skipt um fráveitulagnir innan eignar, gólfhiti í öll rými f. utan annað herbergið, nýjar innihurðar, skipt um gólfefni eitt herbergi. Nýlega var gerð rúmgóð timburverönd með skjólveggjum framan við íbúðina.

Nánari upplýsingar veitir:
Gunnlaugur Hrannar Jónsson, löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 8990720 eða í tölvupósti á hrannar@lifumheima.is

Borgarbraut 28

310 Borgarnes
34.900.000 kr.585 þ./m²
Hæð1 svefn · 1 bað
Byggingarár1911TegundHæðStærð59,7 m²Herbergi2InngangurSérinngangurFasteignanúmerF21110355Fasteignamat28.200.000 kr.Brunabótamat27.900.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHamravík 36, 112 ReykjavíkSími899-0720

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 12 myndir

Upp ↑