fasteignasölur.is
Borgarholtsbraut 68
Opið hús 15. sept. kl. 17:00–17:30
1 af 51

Um eignina

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir fallega og fjölskylduvæna og mikið endurnýjaða eign með auka íbúð á eftirsóttum stað í hjarta Kópavogs

Eignin er vel skipulögð  fimm herbergja neðri hæð í tvíbýlishúsi með fallegum og rótgrónum garði við Borgarholtsbraut 68 í Kópavogi. Eignin er staðsett í rólegu og barnvænu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, leikskóla, grunnskóla, Kópavogslaug og vinsæla leikvelli.
Eignin er skráð 107,7 fermetrar og aukaíbúðin er 49 fermetrar. 


-  Frábær staðsetning 
-  Auka íbúð í bakhúsi með útleigumöguleikum
-  Einkabílastæði


Nánari lýsing eignar 
Eignin skiptist svona- sameiginleg forstofa með efri hæð

Breiður og bjartur gangur með innfelldu fatahengi. Gangurinn tengir saman allt rými íbúðarinnar. 
Eldhús með nýrri hvítri innréttingu með ljúflokunum á skúffum, span helluborð , gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu, eyja sem hægt er að sitja við með góðu skúffuplássi , parket á gólfi.
Stofa-borðstofa með stórum gluggum og parketi á gólfi. 
Hjónaherbergi með nýjum fataskáp og parketi á gólfi, gluggar á tvo vegu.
Tvö svefnherbergi með parketi á gólfi.( Búið að sameina það í eitt ) en auðvelt að breyta til baka. Nýr fataskápur
Baðherbergi með sturtu, snyrtilegri innréttingu og upphengdu salerni, flísalagt gólfi og veggir, opnanlegur gluggi.
Þvottahús sem er sameiginlegt með efri hæð þar sem hver er með sínar vélar
Geymsla með hillum og parketi á gólfi, opnanlegur gluggi.

Aukaíbúð í bakhúsi:
Á lóðinni er rúmgott, 49 fm bakhús sem er innréttað sem íbúð.
Skipulag íbúðar er eftirfarandi: Forstofa/gangur, eldhúskrókur, stofa, svefnherbergi með fataskáp og baðherbergi. 

Nánari lýsing
Forstofa
með parketi á gólfi og fatahengi
Eldhús með nýlegri innréttingu  , gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu, ofn með helluborði og nýjum háf, 
Baðherbergi með nýlegri hvítri innréttingu með efri og neðri skápum, sturtuklefa , linolíum dúkur á gólfi. 
Svefnhebergi með parketi á gólfi og opnum fataskáp.

Húsið hentar mjög vel fyrir útleigu, heimagistingu, eða sem frábær aðstaða fyrir ungling eða fjölskyldumeðlim.

Lóð og aðstaða:
Um 1.000 fm rótgróin lóð sem nýtist vel fyrir börn, garðyrkju og samveru
Á lóðinni er sandkassi, sólpallur og garðhúsgögn
Rafhleðslustöð fyrir rafbíl við einkabílastæði (sem fylgir neðri hæð) pláss fyrir 2–3 bíla) 


Viðhald og endurbætur:
* Hitavatnslagnir endurnýjaðar 2005
* Frárennslislagnir endurnýjaðar 2006 (frá kjallara og út í brunn á baklóð)
* Þakplötur endurnýjaðar á framhúsi 2005 og á auka íbúð í bakhúsi 2024
* Framhús málað og sprunguviðgert sumarið 2024
* Gluggar og gler vel viðhaldið, allt gler endurnýjað 2002 
* Eldhúsinnrétting endurnýjuð 2025
* Allar innihurðar í íbúðinni endurnýjaðar ásamt hurðum í auka íbúð 2025
* Útidyrahurð endurnýjuð 2025
* Allt rafmagn endurnýjað í íbúð og auka íbúð 2025
* Allt parket endurnýjað í íbúð og auka íbúð 2025
* Sturtuklefi endurnýjaður í auka íbúð ásamt háf í eldhúsi .
* Ofnalagnir endurnýjaðar ásamt þvi að flestir ofnar voru endurnýjaðir í íbúð



Umhverfi og uppbygging:
Kársnesið er í örum vexti og er að þróast hratt. Handan götunnar er stór leikvöllur (Stelluróló) og sparkvöllur. Í götunni eru fleiri stærri leiksvæði fyrir börn, sundlaug, skóli og leikskóli, tónlistarsalur og listasafn. Einnig er sutt í Sky Lagoon yst á Kársnesinu. Eignin hentar einstaklega vel fyrir fjölskyldufólk sem vill rólegt og rótgróið umhverfi með alla helstu þjónustu í göngufæri. 

Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is 

Borgarholtsbraut 68

200 Kópavogur
120.000.000 kr.766 þ./m²
Hæð4 svefn · 2 bað
Byggingarár1953TegundHæðStærð156,7 m²Herbergi6InngangurSameiginlegurBílskúrFasteignanúmerF20592201Fasteignamat105.500.000 kr.Brunabótamat88.100.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 51 myndir

Upp ↑