fasteignasölur.is
Kirkjuvegur 9 íbúð 101
1 af 14

Um eignina

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Fallega 2ja herbergja íbúð á einni hæð í litlu fjórbýli við Kirkjuveg 9 á Dalvík, rétt við Dalbæ - samtals 64,3 m²


Eignin skiptist í forstofu/gang, eitt svefnherbergi, eldhús, stofu, baðherbergi með þvottaaðstöðu og geymslu.

Forstofa og gangur eru með harðparketi á gólfi og þar er tvöfaldur fataskápur. 
Eldhús hefur verið endurnýjað. Þar er hvít innrétting með dökkri borðplötu og flísar á milli skápa. 45 cm uppþvottavél er innfelld í innréttingu og fylgir hún með við sölu eignar. 
Stofa og eldhús eru í opnu rými þar sem harðparket er á gólfum og gluggar til tveggja átta. Úr stofu er rennihurð út á hellulagða suður verönd. 
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, tvílit innrétting, hvít og beyki, upphengt wc, sturta og tengi fyrir þvottavél. 
Sér geymsla er innan íbúðar með dúk á gólfi og hillum, þar er jafnframt tengi fyrir þvottavél. Hleri er í loftinu.

Snyrtileg hellögð sameign er á milli íbúða. Nýleg útidyrahurð og gluggar á suðurhliðinni.

Annað
- Eins harðparket er á allri íbúðinni. 
- Eldhús hefur verið endurnýjað.
- Sér hitaveita.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Kirkjuvegur 9 íbúð 101

620 Dalvík
35.700.000 kr.555 þ./m²
Rað-/parhús1 svefn · 1 bað
Byggingarár1993TegundRað-/parhúsStærð64,3 m²Herbergi2InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF21550501Fasteignamat26.950.000 kr.Brunabótamat42.650.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHafnarstræti 19, 600 AkureyriSími466-1600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 14 myndir

Upp ↑