Um eignina
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 203,9 fm. og þar af er bílskúr 23 fm.
Nánari lýsing eignar:
Komið er inn á miðhæðina, nýlegur steyptur stigi með snjóbræðslu.
Forstofa rúmgóð og björt, fatahengi og flísar á gólfi. Viðarstigi liggur upp í ris við forstofu.
Gestasalerni með upphengdu salerni, hornvask og flísum á gólfi.
Stofa/borðstofa opin og björt með parketi á gólfi. Úr stofunni er hringstigi niður í kjallara hússins.
Eldhús er opið við stofuna. Í eldhúsinu er falleg innrétting með innbyggðri uppþvottavél, helluborð, gufugleypir, ofn í vinnuhæð, gott borðpláss og flísar á hluti veggja. Parket á gólfi.
Kjallari, hringstigi liggur úr stofunni niður í kjallara og einnig er innangengt inn í að utan.
Forstofa með flísum á gólfi. Hringstigi liggur úr stofunni niður í kjallara.
Hol sem tengir alla vistaverur saman, parket á gólfi.
Hjónaherbergi rúmgott með góðu skápaplássi og parket á gólfi.
Herbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi mjög rúmgott með innangengri sturtu, gluggi, gott skpapláss, upphengt salerni, handklæðaofn og flísar á gólfi.
Þvottahús með vask, glugga og flísum á gólfi.
Geymsla er á hæðinni sem hefur veirð nýtt sem skrifstofurými með parketi á gólfi.
Risið
Viðarstigi er upp í risið.
Risið er að mestu opið rými með lökkuðu furugólfi. Inn af risi er geymsla/fatarými með glugga. Í dag er risið nýtt sem stórt svefnherbergi.
Bílskúr er frístandandi og var byggður árið 2005. Rafmagnshurðaopnari, heitt og kalt vatn, rafmagn og gluggi.
Lóðin er í mjög góðri rækt með góðum geymsluskúr sem nýtist vel.
Húsið var endurnýjað að mestu að utan á árunum 2005 til 2012 m.a. endurnýjaðar lagnir út í götu og skipt um dren, raflagnir endurnýjaðar og skipt um rafmagnstöflu. Þá var bílaplan hellulagt og í það lagt snjóbræðsla. Ofna- og neysluvatnslagnir endurnýjaðar og nýtt járn á útveggi og einangrað að nýju. Baðherbergi var endurnýjað 2014 og eldhús ásamt gólfefnum á hæð 2018.
Stigi við aðalinngang hússins var endurnýjaður 2020 og sett í hann snjóbræðsla.
Þak yfirfarið 2024 og málað. Húsið allt málað 2024.
Húsið er klassískt timburhús eins og þau voru byggð í upphafi 20. aldar, það er byggt á hlöðnum grágrýtiskjallara eins og þá tíðkaðist. Lóðin er aflokuð og skjólgóð með hellulögn og timburpöllum.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Grettisgata 42
Staðsetning
Allar 52 myndir
Upp ↑


















































