fasteignasölur.is
Gautland 5
Opið hús 14. sept. kl. 18:00–18:30
1 af 23

Um eignina

Valhöll kynnir fallega og bjarta 2ja herbergja íbúð með stórum suðurpalli í Gautlandi 5 í Fossvoginum. Íbúðin er skráð 62 fm á stærð og er hún vel skipulögð og nýtast allir fermetrar vel.

Íbúðin skiptist í anddyri, baðherbergi, svefnherbergi, eldhús og stofu. Stór suðurpallur og sameiginilegur garður. Næg bílastæði.

Frábær staðsetning örstutt frá helstu stofnbrautum, verslunarmiðstöðinni Grímsbæ og öllu sem þar er ásamt því að stutt er í fallegar gönguleiðir niðrí Fossvogsdal.


Nánari lýsing:
Anddyri:
með parketi á gólfi.
Svefnherbergi: með opnum fataskápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi: með baðkari með sturtu í, opnum skáp undir vask og flísum á gólfi.
Eldhús: með hvítri eldhúsinnréttingu með eyju, ofni í vinnuhæð, aðstöðu fyrir uppþvottavél og parketi á gólfi.
Stofa / borðstofa: samliggjandi í opnu alrými með eldúsinu með útgengi á stórum suðurpalli.
Þvottahús: sameiginlegt á sömu hæð og íbúð.
Hjóla- vagnageymsla: sameiginleg á sömu hæð og íbúð.

Endurbætur á húsi og íbúð:
2004 - Járn á þaki endurnýjað.
2006 - Austurgafl hússins klæddur.
2012 - Þakkantur lagaður.
2020 - Hús múrviðgert og málað.
2023 - Ný innrétting að hluta í eldhúsi, ný borðplata og nýr vaskur og blöndunartæki.
2024 - Skipt um lagnagrind í stigagangi.
2025 - Stigangur málaður.

Nánari upplýsingar veitir:
Snorri Björn Sturluson löggiltur fasteignasali / lögfræðingur í síma 699-4407 eða snorribs@valholl.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5þ Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Gautland 5

108 Reykjavík
65.900.000 kr.1.063 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár1968TegundFjölbýlishúsStærð62 m²Herbergi2InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF20369361Fasteignamat58.450.000 kr.Brunabótamat36.750.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSíðumúli 27, 108 ReykjavíkSími588-4477

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 23 myndir

Upp ↑