fasteignasölur.is
Skarðshlíð 29 - 203
1 af 28

Um eignina

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Skarðshlíð 29 – 203
 
Spennandi fasteign með mikla möguleika í fjölbýlishúsi við Skarðshlíð. Um er að ræða íbúð á 2. hæð sem upprunalega var þriggja herbergja en hefur verið breytt í fjögurra herbergja með nútímalegu skipulagi. Samkvæmt upplýsingum HMS er eignin skráð samtals 84,2 fm. ásamt sér geymslu í sameign. 

Töluvert grunnstarf hefur nú þegar verið unnið; búið er að færa eldhúsið inn í alrýmið og útbúa nýtt svefnherbergi þar sem eldhúsið var. Einnig hefur skorsteinn fjarlægður úr einu herberginu sem stækkaði við það, útbúið rúmgott sjónvarpshol og voru lagnir og rafmagn fært og endurnýjað að einhverjum hluta við þessar breytingar. 
Eignin afhendist í núverandi ástandi og er kjörin fyrir laghenta kaupendur eða þá sem vilja innrétta og klára eignina frá grunni á sinn eigin smekklega máta. 
 
Eignin skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, eldhús og stofu í opnu rými, sjónvarpshol, baðherbergi og sér geymslu í sameign sem og hlutdeild í vagna og hjólageymslu.
 
Forstofa er flísalögð með hita í gólfi. Þar er heimagerður handklæðaofn sem auðvelt er að breyta.
Alrými (Eldhús og stofa), bjart og opið rými þar sem gengið er út á stórar, suðursvalir. Í eldhúsinu er nú bráðabirgðainnrétting, en rýmið býður upp á frábæra möguleika fyrir nýja eigendur að gera að sínu.
Svefnherbergin eru þrjú. Eitt þeirra er staðsett strax til vinstri úr forstofu (þar sem eldhúsið var áður) þar eru flísar á gólfi og gólfhiti, stór speglaskápur. Hin tvö herbergin eru inn af sjónvarpsholinu, bæði með parket á gólfi og skápur í öðru þeirra.
Sjónvarpshol er rúmgott með flísum á gólfi og gólfhita. Sjónvarpshol sem útbúið var með því að sameina eldra hol, geymslu og hluta af baðherbergi.
Baðherbergi staðsett inn af sjónvarpsholinu. Á baðherbergi er gert ráð fyrir tengi fyrir þvottavél og þurrkara, þar er einnig gólfhitagrindin. 

Annað:
- Fullkomið tækifæri til að velja eigið efnisval, liti, innréttingar og gólfefni.
- Gólfhiti er nú þegar kominn í hluta íbúðarinnar. Gólfhitagrindin er þannig að einfalt væri að tengja gólfhita inn á grindina fyrir alla íbúðina í framtíðinni.
- Búið er að endurnýja og færa rafmagn og lagnir að einhverjum hluta til að mæta hinu nýja skipulagi.
- Eitthvað er til af parketi, gólflistum og flísum sem fylgir með í kaupunum.
- Nýlegur dyrasími er í íbúðinni.
- Til stendur að setja rafhleðslustöð 
- Umræða um viðgerð á þaki og endurbætur á stigagangi
- Frárennslis- og hitavatnslögn endurnýjað fyrir nokkrum árum síðan. 
- Húsið drenað fyrir ca. 2-3  árum síðan
- Stutt í leik- og grunnskóla og verslun.
- Fasteignasali hefur breytt grunnmyndinni til að sýna núverandi skipulag og breytingar á eigninni.
- Eignin selst í því ástandi sem hún er í við skoðun

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
olafur@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Skarðshlíð 29 - 203

603 Akureyri (utan Glerár)
43.000.000 kr.511 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár1971TegundFjölbýlishúsStærð84,2 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF21503671Fasteignamat42.900.000 kr.Brunabótamat44.000.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkipagötu 16, 600 AkureyriSími464-9955

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 28 myndir

Upp ↑