fasteignasölur.is
Hulduhlíð 44
Opið hús 14. sept. kl. 16:30–17:00
1 af 28

Um eignina

** Opið hús mánudaginn 14. september frá kl. 16:30 til 17:00 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 ** 

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Vel skipulögð 4ra herbergja, íbúð á jarðhæð með sérinngang og afgirtri timburverönd ásamt endabílskúr í botnlanga við Hulduhlíð í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 121,7 m2, þar af íbúð 94,4 m2 og bílskúr 27,3 m2.
Íbúðin skiptist í þrjú svefnherbergi, forstofu, geymslu innan íbúðar, baðherbergi, eldhús og stofu. Við hlið inngangs í íbúðina er geymsla. Bílskúrinn er endabílaskúr sem stendur fyrir framan húsið.
Tvö bílastæði merkt íbúðinni eru á bílastæði fyrir framan húsið. Frábær staðsetning í Mosfellsbæ, rétt við skóla, leikskóla, sundlaug og golfvöll. Stutt í verslun og alla helstu þjónustu.


Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi.
Gangur er með parketi á gólfi.
Geymsla innan íbúðar er með hillum og dúk á gólfi.
Stofa er með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á afgirta timburverönd í suðvesturátt.
Eldhús er með L-laga innréttingu og borðkrók. Í innréttingu er ofn, helluborð og vifta. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu.  
Svefnherbergi nr. 1 er með fataskápum og dúk á gólfi.
Svefnherbergi nr. 2 er með fataskáp og dúk á gólfi.
Svefnherbergi nr. 3 er með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi er dúklagt með salerni, sturtuklefa og innréttingu. Tengi fyrir þvottavél er á baðherbergi. 
Sérgeymsla er við hlið inngangs í íbúðina, skráð 5,6 m2.
Bílskúr er skráður 27,3 m2 með innkeyrsluhurð með rafdrifnum hurðaopnara og inngönguhurð. Lítið geymsluloft, hillur, rafmagn, hiti og rennandi vatn er í bílskúr.

Verð kr. 89.900.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Hulduhlíð 44

270 Mosfellsbær
89.900.000 kr.739 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár1999TegundFjölbýlishúsStærð121,7 m²Herbergi4InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF22410761Fasteignamat89.100.000 kr.Brunabótamat59.650.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangKjarni - Þverholti 2, 270Sími586-8080

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 28 myndir

Upp ↑