fasteignasölur.is
Einihraun 3
1 af 32

Um eignina

Trausti fasteignasala og Þorbjörn Geir Ólafsson, löggiltur fasteignasali, kynna til sölu bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýlishúsi á Bifröst. Eignin er skráð 67,7 fermetrar og hentar vel bæði til heilsársbúsetu og sem notalegt afdrep í fögru og friðsælu umhverfi. Íbúðin skiptist í anddyri, rúmgott alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Að auki er sameiginleg geymsla í kjallara. Íbúðin getur verið laus fljótlega.

Nánari lýsing:
Anddyri: Sérinngangur er að íbúðinni og dúkur á gólfi.
Alrými: Bjart og opið rými þar sem stofa, borðstofa og eldhús mynda eina heild. Eldhúsinnrétting er hvít með beykiköntum. Úr stofu er gengið út á svalir sem snúa til suðvesturs.
Baðherbergi: Búið sturtu og aðstöðu fyrir þvottavél. Dúkur er á gólfi.
Svefnherbergi I: Rúmgott herbergi með innbyggðum fataskápum og dúk á gólfi.
Svefnherbergi II: Herbergi með innbyggðum fataskáp og dúk á gólfi.
Geymsla: Sameiginleg geymsla er í kjallara hússins.
Með íbúðinni fylgir ísskápur, uppþvottavél og þvottavél.

Hér er um að ræða áhugaverða eign sem getur hentað jafnt til heilsársbúsetu sem frístundanota. Bifröst er staðsett í einstaklega fallegu umhverfi þar sem fjölbreyttir möguleikar til útivistar eru í næsta nágrenni. Þar má meðal annars nefna vinsælar gönguleiðir við Hreðavatn, á Grábrók og að Glanna í Norðurá.
Á svæðinu er jafnframt ýmis þjónusta, meðal annars leikskóli, hótel, veitingastaður og golfvöllur.

Nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Geir Ólafsson, löggiltur fasteignasali, í síma 895-5198 eða með tölvupósti á bjossi@trausti.is.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Einihraun 3

311 Borgarnes (dreifbýli)
24.900.000 kr.368 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2002TegundFjölbýlishúsStærð67,7 m²Herbergi3InngangurSérinngangurFasteignanúmerF22582401Fasteignamat19.650.000 kr.Brunabótamat38.050.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 32 myndir

Upp ↑