Um eignina
Íbúðin skiptist í forstofu/gang, stofu, borðstofu, rúmgott svefnherbergi, eldhús og baðherbergi.
Nánari lýsing:
Forstofa/gangur: Tengir rými íbúðarinnar saman.
Eldhús: Snyrtilegt eldhús með góðu skápa- og vinnuplássi ásamt borðkrók.
Stofa: Rúmgóð og björt stofa.
Borðstofa: Björt og rúmgóð. Möguleiki er á að nýta rýmið sem annað svefnherbergi.
Hjónaherbergi: Rúmgott með góðum fataskáp.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með baðkari með sturtu.
Herbergi í kjallara: Sérherbergi fylgir eigninni í kjallara og hefur verið leigt út margsinnis. Herbergið býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, s.s. sem vinnuaðstöðu, gestaherbergi eða til útleigu. Sameiginlegt salerni með vaski er í kjallara.
Geymsla: Sérgeymsla fylgir íbúðinni í kjallara.
Sameign: Sameiginlegt þvottahús er í kjallara þar sem hver íbúð hefur aðstöðu fyrir eigin þvottavél og þurrkara. Þar er einnig sameiginlegt geymslurými sem m.a. hefur verið nýtt fyrir hjól og barnavagna. Aðeins þrjár íbúðir eru í stigaganginum. Sameiginlegur bakgarður með útgengi frá húsinu er á baklóð.
Framkvæmdir á húsinu undanfarin ár:
2011 var þak hússins að Barónsstíg 51 endurnýjað.
2023 var sameign og kjallari máluð, raflagnir yfirfarnar og ný ljós sett upp.
2024 var ný útidyrahurð sett upp við bakgarð.
Annað:
Um er að ræða vel skipulagða eign á frábærum stað í miðbæ Reykjavíkur. Stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir, veitingastaði og kaffihús. Sundhöll Reykjavíkur og Hallgrímskirkja eru í næsta nágrenni og stutt er í Landspítalann, Klambratún og miðborgina.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / Beinn sími 450-0000
Skoða meðmæli - Verðmat fasteigna - Lúxus fasteignir - Greiðslumat.is - Hvað getur þú keypt
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður
Barónsstígur 51
Staðsetning
Allar 15 myndir
Upp ↑













