fasteignasölur.is
Bæjargil 30
Opið hús 16. sept. kl. 17:00–17:20
1 af 48

Um eignina

LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu einstaklega vel skipulagt og mikið endurnýjað raðhús á tveimur hæðum á eftirsóttum og fjölskylduvænum stað í Garðabæ. Eignin býður upp á fjögur rúmgóð svefnherbergi, bjart og opið alrými og einstaklega gott útisvæði með stórri timburverönd, heitum og köldum potti ásamt útisturtu.

Eignin hefur verið mikið endurnýjuð á síðustu árum, meðal annars eldhús, baðherbergi og gestasalerni, gólfefni og hitakerfi. Gólfhiti er á neðri hæð að bílskúr undanskildum og ofnar á efri hæð hafa verið endurnýjaðir. Þá hefur nýlega verið skipt um járn á þaki og húsið málað að utan. Hellulögð aðkoma hefur verið endurnýjuð með snjóbræðslu og bílastæði stækkuð með plássi fyrir allt að þrjá bíla.

Birt stærð eignarinnar er 162,3 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands.

Eignin skiptist á neðri hæð í forstofu, gestasalerni, þvottahús, eldhús, stofu og borðstofu í opnu rými auk bílskúrs sem í dag er nýttur sem sjónvarps-/vinnuherbergi. Á efri hæð eru fjögur svefnherbergi og baðherbergi auk rúmgóðra þaksvala út frá hjónaherbergi.

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT – Allar frekari upplýsingar veitir Þórey í síma 663 2300 eða á thorey@fastlind.is

Nánari lýsing – neðri hæð
Forstofa
er rúmgóð með fataskáp og skóskápum, gráar flísar á gólfi. Frá forstofu er aðgengi að gestasalerni, þvottahúsi og bílskúr/sjónvarpsherbergi.
Gestasalerni hefur verið endurnýjað með upphengdu salerni, gráar flísar á gólfi og vegg að hluta.
Þvottahús er rúmgott með góðri innréttingu, vinnuborði og skolvaski. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara, flísar á gólfi. Innangengt er þaðan í bílskúr.
Eldhús hefur verið endurnýjað með fallegri hvítri sérsmíðaðri innréttingu, miklu skápa- og vinnuplássi og ljósgráum steini á borðum. Tveir bakaraofnar eru í vinnuhæð, 80 cm spanhelluborð og háfur auk þess sem gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp.
Stofa og borðstofa mynda bjart og rúmgott alrými með harðparketi á gólfi. Útgengt er úr stofu á stóra og skjólgóða timburverönd sem skapar frábæra framlengingu á alrými hússins yfir sumartímann.
Bílskúr er í dag nýttur sem rúmgott sjónvarps-/vinnuherbergi með góðum geymsluskápum, flísar á gólfi. Sérinngangur er að utan auk þess sem innangengt er frá þvottahúsi. 

Nánari lýsing – efri hæð
Hjónaherbergi
er rúmgott með góðum nýlegum fataskáp með rennihurðum og harðparketi á gólfi. Útgengt er á stórar þaksvalir sem ná meðfram húsinu og snúa til norðurs, austurs og suðurs. Dúkur er á svalagólfi með plastflísum yfir.
Barnaherbergi I, II og III eru öll rúmgóð og hluti rýmanna undir súð sem eykur nýtanlegan gólfflöt. Harðparket er á gólfum og fataskápar í tveimur herbergjanna.
Baðherbergi hefur verið glæsilega endurnýjað með rúmgóðri sturtu, upphengdu salerni, innbyggðum blöndunartækjum og handklæðaofni. Falleg hvít innrétting með góðu skápaplássi.

Útisvæðið er einn af skemmtilegri kostum eignarinnar. Frá stofu er útgengt á stóra og skjólgóða timburverönd með skjólveggjum þar sem komið hefur verið fyrir heitum og köldum potti frá Trefjum ásamt útisturtu og sturtuklefa. Á veröndinni eru jafnframt tveir geymsluskúrar, þar af annar upphitaður, og aðstaðan því einstaklega góð til útiveru og samveru allt árið.

Aðkoma að húsinu er snyrtileg með hellulagðri stétt og snjóbræðslu sem nýlega hefur verið endurnýjuð. Bílastæði hefur jafnframt verið stækkað og þar er gott pláss fyrir allt að þrjá bíla.

Eignin hefur fengið mikið og gott viðhald á síðustu árum. Eldhús, baðherbergi og gestasalerni hafa verið endurnýjuð ásamt gólfefnum. Gólfhiti hefur verið lagður á neðri hæð að bílskúr undanskildum og ofnar á efri hæð endurnýjaðir. Nýlega var jafnframt skipt um járn á þaki og húsið málað að utan.

Frábær staðsetning í rótgrónu og fjölskylduvænu hverfi í Garðabæ þar sem örstutt er í leik- og grunnskóla, Fjölbrautaskólann í Garðabæ, verslanir, þjónustu og miðbæ Garðabæjar.

Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða á thorey@fastlind.is
 
Á heimasíðunni minni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.

Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.

 

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Lind fasteignasala ehf.
159.900.000 kr.985 þ./m²
+31,1% á 4 árum
1. febrúar 2023Þinglýstur kaupsamningur
122.000.000 kr.752 þ./m²
+35,6% á 2 árum
6. nóvember 2020Þinglýstur kaupsamningur
90.000.000 kr.555 þ./m²
+130,8% á 9 árum
21. júní 2011Fyrsta sala
39.000.000 kr.240 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Bæjargil 30

210 Garðabær
159.900.000 kr.985 þ./m²
Rað-/parhús4 svefn · 2 bað
Byggingarár1991TegundRað-/parhúsStærð162,3 m²Herbergi5InngangurSérinngangurFasteignanúmerF20696421Fasteignamat131.650.000 kr.Brunabótamat92.750.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 48 myndir

Upp ↑