fasteignasölur.is
Sólvallagata 47
Nýtt
1 af 62

Um eignina

Þröstur Þórhallsson og Miklaborg kynna í einkasölu: Sólvallagötu 47, sjarmerandi og vel endurnýjað einbýlishús frá árinu 1905 í hjarta gamla Vesturbæjarins og einu eftirsóttasta hverfi Reykjavíkur.


Húsið er á þremur hæðum, skráð 210 fm samkvæmt FMR, en til viðbótar er 20 fm stúdíóíbúðar í bílskúr sem er í útleigu í dag, samtals 230 fm. Húsið var endurbyggt og stækkað árunum 1990–2000 undir handleiðslu Páls V. Bjarnasonar arkitekts og fyrrverandi formanns húsfriðunarnefndar.

Auk þess var farið í miklar endurbætur árið 2021. (Sjá ástandsyfirlýsingarblað)

Frábær staðsetning, eignarlóð, skjólgóður suðurgarður með heitum og köldum pottum og auka leigutekjur gera þessa eign sérstaklega eftirsótta bæði sem heimili og fjárfestingu.


Allar nánari upplýsingar veita fasteignasali í síma 8998278 eða moa@miklaborg.is og Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is

Nánari lýsing:
Á aðalhæð tekur á móti þér björt flísalögð forstofa með gestasnyrtingu, sjarmerandi eldhús með SMEG ísskáp, innbyggðri SMEG uppþvottavél og tvöfaldri SMEG gaseldavél.

Tvær rúmgóðar og bjartar stofur með stórum gluggum og fallegum gólffjölum.

Frá stofunni er útgengi út á pall og þaðan í afar skjólsælan og gróinn suðurgarð þar sem glæsileg SPA aðstaða hefur verið útbúin með bæði heitum og köldum potti sem stýrt er með snjallkerfi í síma.

Stóri og fallegi Hlynurinn í garðinum myndar gott skjól og líkist listaverki á sumrin.

Á efri hæð eru tvö stór svefnherbergi, þar af eitt með útgengi á vestursvalir sem nýtur kvöldsólarinnar.
Stórt og mikið endurnýjað baðherbergi með tveimur opnanlegum þakgluggum og bæði baðkari og walk-in sturtu.

Á jarðhæð er einnig útgengt út í garð. Rúmgott svefnherbergi sem snýr til suðurs, tvö góð geymslurými, þvottahús og þurrkherbergi (möguleiki á auka baðherbergi).


Sérinngangur og stúdíóíbúð í bílskúr og hálfum kjallara (30 fm, sem er í útleigu) skapa aukin tækifæri til tekjuöflunar og/eða sveigjanleika fyrir fjölskylduna og gesti.

Frábær staðsetning, eignarlóð, skjólgóður suðurgarður með heitum og köldum pottum og auka leigutekjur gera þessa eign sérstaklega eftirsótta bæði sem heimili og fjárfestingu.


Allar nánari upplýsingar veitir Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Miklaborg
215.000.000 kr.1024 þ./m²
+87,0% á 5 árum
17. ágúst 2021Þinglýstur kaupsamningur
115.000.000 kr.548 þ./m²
+61,7% á 7 árum
2. september 2014Fyrsta sala
71.100.000 kr.339 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Sólvallagata 47

101 Reykjavík
215.000.000 kr.1.024 þ./m²
Einbýlishús4 svefn · 3 bað
Byggingarár1910TegundEinbýlishúsStærð210 m²Herbergi6InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2002335Fasteignamat180.400.000 kr.Brunabótamat107.100.000 kr.
Skráð hjá
Þröstur ÞórhallssonLöggiltur fasteignasali597-0634 · throstur@miklaborg.is
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 62 myndir

Upp ↑