Opið hús 15. sept. kl. 17:00–17:30
1 af 50Um eignina
Nýtt á skrá! Fellahvarf 16 Kópavogi - Stórglæsileg útsýnishæð (efri hæð) með sérinngangi og 3-4 svefnherbergjum!
Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynna til sölu glæsilega 135,8 fermetra 4-5 herbergja efri sérhæð með sérinngangi í fallegu klasahúsi við Fellahvarf 16 í Kópavogi. Um er að ræða vandaða og fallega hæð með stórkostlegu og óviðjafnanlegu útsýni til suðurs yfir Elliðavatni og til fjalla.
Þrjú svefnherbergi (möguleiki á fjórum á kostnað hluta af stofu) og rúmgott alrými sem skiptist í annars vegar stóra stofu sem rúmar setustofu og borðstofu og hins vegar sjónvarpsstofu. Útgengi úr stofu á rúmgóðar svalir til suðurs með glæsilegu útsýni. Afar fallegt eldhús með vönduðum innréttingum með graníti á borðum, undirfelldum vaski og stórri eldhúseyju. Innfelld lýsing er víða í íbúðinni, rúmgott baðherbergi og þvottaherbergi/geymsla inn af eldhúsi.
Hellulögð stétt fyrir framan hús með snjóbræðslu og sameiginleg bílastæði á lóðinni. Tvö sérmerkt stæði á framlóð næst inngangi.
Um er að ræða eftirsótta staðsetningu, í lokuðum botnlanga, í góðu fjölskylduhverfi í Hvörfunum í Kópavogi. Leikskóli, grunnskóli, íþróttasvæði við Kórinn í göngufjarlægð. Verslun og þjónusta í næsta nágrenni ásamt frábærum hjóla- og gönguleiðum við Elliðavatn.
Nánari lýsing:
Forstofa: Er rúmgóð, með flísum á gólfi og góðum fataskápum. Sérinngangur.
Svefnherbergi I: Með gegnheilu parketi, skápum og glugga til norðurs.
Hol/gangur: Með gegnheilu parketi á gólfi og innfelldri lýsingu í loftum.
Eldhús: Er afar glæsilegt með gegnheilu parketi á gólfi og hvítri eldhúsinnréttingu með granítsteini á borðum og undirfelldum vaski. Stór eldhúseyja með AEG gashelluborði, stál eyjuháfi og fallegum granítsteini á borðum. AEG stál bakaraofn, innb. kaffivél og stál örbylgjuofn. Innfelld lýsing í loftum að hluta og lýsing undir efri skápum. Glæsilegt útsýni út á Elliðavatn og til fjalla. Eldhús er opið við stofu.
Þvottaherbergi: Er vel staðsett inn af eldhúsi. Flísar á gólfi, tenglar fyrir þvottavél/þurrkara, vinnuborð og vaskur. Opnanlegur gluggi til austurs.
Stofa: Er stór með gegnheilu parketi á gólfi og stórum gluggum til suðurs með stórglæsilegu og óhindruðu útsýni að Elliðavatni, til fjalla og víðar. Vegna legu á stofu er möguleiki á að bæta við svefnherbergi á kostnað hluta stofu. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu.
Svalir: Eru stórar, með timbursvalagólfi og gler handriði. Glæsilegt útsýni er frá svölum út á Elliðavatn og til fjalla.
Svefnherbergi II: Með gegnheilu parketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs.
Svefnherbergi III (hjónaherbergi): Með gegnheilu parketi á gólfi, skápum á heilan vegg og gluggum til norðurs.
Baðherbergi: Er virkilega fallegt og tímalaust. Ljósar flísar á gólfi og veggjum, baðkar með sturtutækjum og flísalögð sturta með glerþili. Falleg innrétting við vask og upphengt/innbyggt salerni.
Geymsla: Er staðsett inn af svefngangi.
Hjóla og vagnageymsla: Er staðsett á jarðhæð í sameign hússins.
Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is

Fellahvarf 16
203 Kópavogur
126.900.000 kr.934 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2005TegundFjölbýlishúsStærð135,8 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF22716011Fasteignamat92.900.000 kr.Brunabótamat78.200.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 50 myndir
Upp ↑