fasteignasölur.is
Goðanes 3B - 102
Nýtt
1 af 7

Um eignina

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Goðanes 3b, eign merkt 01-102 - Nýbygging


Nýtt og vandað geymsluhúsnæði á neðri hæð og með góðri aðkomu í Goðanesi á Akureyri - stærð 68,2 m²

Húsið er steypt, einangrað að utan og klætt með liggjandi báru áli. 
Innkeyrsluhurð er frá Límtré vírnet og með rafdrifnum opnara. Stærð hurðar er 3,6 metrar á breidd og 3,4 metrar á hæð.
Gönguhurð er áltré frá Húsasmiðjunni.

Að innan afhendist eignin með vélslípuðum veggjum og gólf með pússaðri áferð. Allir innveggir eru staðsteyptir.
Þak er 160 mm samlokueiningar með steinull og tvöföldu lagi af pappa. Milligólf eru steypt.
Gólfhiti.
Lagnir eru í gólfi fyrir snyrtingu, sjá staðsetningu á teikningum. 
Rafmagnstafla er fullbúin og lagt er fyrir einum 3ja fasa tengli. Lagt er fyrir vinnuljósi í lofti og rofa við hurð, ekki er dregið í aðrar dósir. Aukalega eru nokkrar dósir innsteyptar í veggjum, enginn ídráttur og engin ábyrgð tekin á lagnaleiðum.
Útiljós verða fyrir ofan hverja innkeyrsluhurð.
Búið er að draga ljósaleiðara inn í eignina.
Eignin er um 10,5 metrar á dýpt og um 6 metrar á breidd. 

Annað
- Sameignlegt tæknirými er við norðurendan á húsinu þar sem keyrt er inn á lóðina.
- Fullfrágengið Brunakerfi er í húsinu, reykskynjari, sökkulsírena og handboði í hverju bili.
- Steypt stétt er með fram húsinu með hitalögnum í.
- Góð aðkoma - stórt malbikað bílaplan. 
- Lóðin er leigulóð í eigu Akureyrarbæjar og 6.504,7 m² að stærð.
- Á eigninni hvílir vsk-kvöð sem kaupandi yfirtekur. Auglýst verð er tilgreint án vsk-kvaðar.  
- Eignin er laus til afhendingar í okt/nóv.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald eignar, 0,3% af brunabótamati eignar þegar það verður lagt á.

Byggingarverktaki er BB byggingar ehf.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
 

Goðanes 3B - 102

603 Akureyri (utan Glerár)
31.900.000 kr.468 þ./m²
Atvinnuhúsnæði
Byggingarár2026TegundAtvinnuhúsnæðiStærð68,2 m²InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2544432
Skráð hjá
HeimilisfangHafnarstræti 19, 600 AkureyriSími466-1600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 7 myndir

Upp ↑