fasteignasölur.is
Goðanes 3L - 203
Nýtt
1 af 17

Um eignina

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Goðanes 3K, eign merkt 01-202 - Nýbygging

Nýtt og vandað atvinnuhúsnæði á efri hæð og með góðri aðkomu í Goðanesi á Akureyri - stærð 418 m², þar af er steypt milligólf 145,2 m²
Stórir útsýnisgluggar eru austurhliðinni og hurð út á yfirbyggðar svalir með útsýni út fjörðinn.
Hér erum að ræða eign sem hentað getur fyrir fjölbreyttan rekstur.


Húsið er steypt, einangrað að utan og klætt með liggjandi báru áli. 
Innkeyrsluhurð er frá Límtré vírnet og með rafdrifnum opnara. Stærð hurðar er um 4 metrar á breidd og um 4,2 metrar á hæð.
Gönguhurð er áltré frá Húsasmiðjunni.

Að innan afhendist eignin með vélslípuðum veggjum og gólf með pússaðri áferð. Allir innveggir eru staðsteyptir.
Þak er 160 mm samlokueiningar með steinull og tvöföldu lagi af pappa. Milligólf eru steypt.
Gólfhiti er á neðri hæðinni.
Snyrting verður stett upp skv. teikningum. 
Rafmagnstafla/skápur er fullbúin og lagt er fyrir einum 3ja fasa tengli. Eignin afhendist með vinnulýsingu, ekki er dregið í aðrar dósir. Aukalega eru nokkrar dósir innsteyptar í veggjum, enginn ídráttur og engin ábyrgð tekin á lagnaleiðum.
Útiljós verða fyrir ofan hverja innkeyrsluhurð.
Búið er að draga ljósaleiðara inn í eignina.

Annað
- Sameignlegt tæknirými er við norðurendan á húsinu þar sem keyrt er inn á lóðina.
- Fullfrágengið Brunakerfi er í húsinu, reykskynjari, sökkulsírena og handboði í hverju bili.
- Steypt stétt verður með fram húsinu með hitalögnum í.
- Góð aðkoma - stórt malbikað bílaplan. 
- Lóðin er leigulóð í eigu Akureyrarbæjar og 6.504,7 m² að stærð.
- Á eigninni hvílir vsk-kvöð sem kaupandi yfirtekur. Auglýst verð er tilgreint án vsk-kvaðar.  
- Eignin er laus til afhendingar í okt/nóv.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald eignar, 0,3% af brunabótamati eignar þegar það verður lagt á.

Byggingarverktaki er BB byggingar ehf.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
 

Goðanes 3L - 203

603 Akureyri (utan Glerár)
147.200.000 kr.352 þ./m²
Atvinnuhúsnæði1 bað
Byggingarár2026TegundAtvinnuhúsnæðiStærð418 m²InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2544442
Skráð hjá
HeimilisfangHafnarstræti 19, 600 AkureyriSími466-1600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 17 myndir

Upp ↑