fasteignasölur.is
Torfufell 48
Opið hús 15. sept. kl. 17:00–17:30
1 af 25

Um eignina

Domusnova og Víðir Arnar kynna glæslilega nýuppgerða íbúð á 2. hæð við Torfufell 48.Íbúðin er með þremur svefnherbergjum en auk þess eru svalir með vandaðri svalalokun og parketi á gólfi og þannig geta svalirnar nýst sem íbúðarrými t.d. sem skrifstofuaðstaða. Íbúðinni fylgja nýr tvöfaldur ísskápur og ný uppþvottavél. Íbúðin er 96,8 fm og þar af er geymsla 4,6 fm.

Nánari lýsing:
Forstofuhol með skápum og flísum á gólfi.
Stofan er rúmgóð og björt með niðurteknu lofti,innfelldri lýsingu og parketi. Útgengi á austur svalir sem eru með svalalokun og parketi á gólfi.
Eldhúsið er með nýrri og fallegri innréttingu, nýjum tvöföldum ísskáp og nýrri uppþvottavél - flísar á gólfi og gólfhiti.
Þvottahús er inn af eldhúsi og er það með vaski.
Hjónaherbergið er með parket á gólfi.
Barnaherbergi er með parket á gólfi.
Barnaherbergi er með parket á gólfi.
Baðherbergið er með fallegri nýrri innréttingu, opinni sturtu og handklæðaofni.
Geymsla 4,6 fm er í sameign á jarðhæð.
Hjólageymsla í sameign.

Íbúðin hefur öll verið endurnýjuð á smekklegan máta, m.a. nýjar innréttingar í eldhúsi og á baði, ný gólfefni,  gólfhiti í eldhúsi og baði, nýjir ofnar, niðurtekin loft og fleira. Sjón er sögu ríkari!

Nánari upplýsingar veita:
Víðir Arnar Kristjánsson löggiltur fasteignasali / s.8542226/ vidir@domusnova.is

Nánari upplýsingar veita:
Víðir Arnar Kristjánsson löggiltur fasteignasali / s.8542226 / vidir@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Torfufell 48

111 Reykjavík
69.900.000 kr.722 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár1974TegundFjölbýlishúsStærð96,8 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF20529811Fasteignamat59.350.000 kr.Brunabótamat50.700.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur, 201 KópavogiSími527-1717

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 25 myndir

Upp ↑