Um eignina
Íbúðin er 46,40 fermetrar og skiptist í anddyri, eldhús, stofu, svefnherbergi og baðherbergi. Frá svefnherbergi er útgengt á suðursvalir. Þá fylgir íbúðinni jafnframt sérgeymsla í sameign hússins.
Nánari lýsing:
Anddyri: Flísar á gólfi.
Eldhús: Eldhúsinnrétting og parket á gólfi.
Stofa: Björt stofa með flísum á gólfi.
Svefnherbergi: Flísar á gólfi. Frá svefnherberginu er útgengt á suðursvalir.
Baðherbergi: Dúkur á gólfi og sturtuaðstaða. Tengi og pláss fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Sérgeymsla fylgir íbúðinni í sameign hússins.
Annað:
Um er að ræða vel skipulagða endaíbúð á efstu hæð í þriggja hæða fjölbýlishúsi. Staðsetningin á Kársnesinu er góð, en stutt er í verslun og alla helstu þjónustu ásamt leik- og grunnskólum. Þá er stutt í fallegar göngu- og hjólaleiðir meðfram strandlengju Kársness og góðar samgöngur til Reykjavíkur og annarra hluta höfuðborgarsvæðisins.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / Beinn sími 450-0000
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður
Kársnesbraut 106
Staðsetning
Allar 9 myndir
Upp ↑







