fasteignasölur.is
Hjarðarhagi 23
1 af 35

Um eignina

Eignamiðlun kynnir:

Vel skipulögð og björt 112,8 fm íbúð á fyrstu hæð í litlu snyrtilegu fjölbýli við Hjarðarhaga. Skipting eignar: Sérinngangur og þaðan gengið í forstofu og gang, tvær samliggjandi stofur, eldhús, baðherbergi, tvö svefnherbergi. Snyrtilegur sólpallur og sér bílastæði á lóð fylgir eigninni.
Frábær staðsetning í Vesturbænum. Stutt í alla helstu þjónustu, leikskóla, skóla, Háskóla Íslands, Vesturbæjarlaug, Melabúðina og aðrar perlur Vesturbæjar.

Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 112,8fm, flatarmál íbúðarrýmis er 110,5 fm og flatarmál geymslu er 2,3 fm.
Fasteignamat 2026 er 100.200.000 kr.

Allar nánari upplýsingar veitir Magnús Þórir Matthíasson í síma 895-1427 eða magnus@eignamidlun.is

*** Smellið hér til að sækja söluyfirlit ***


Lýsing eignar:
Sérinngangur og gengið er inn í forstofu.
Gangur er parketlagður, með fatahengi.
Stórar og bjartar samliggjandi stofur með parket á gólfum. Útgengt er úr borðstofu á svalir sem eru lokaðar með rennihurð og þaðan er hægt að ganga út á pall sem snýr í suður.
Eldhús er einnig parketlagt og með glugga til norðurs. Snyrtileg innrétting með miklu skápaplássi sem var filmuð 2022, flísar á milli skápa, tengi fyrir uppþvottavél.
Hjónaherbergi er rúmgott, parket á gólfi og rúmgóður fataskápur.
Barnaherbergi er rúmgott en það býður upp á ýmsa möguleika, hægt er að skipta því upp í tvö herbergi.
Baðherbergi með glugga, flísalagt í hólf og gólf, nýlegur ofn, snyrtileg innrétting og baðkar með sturtu.

Í kjallara er sér geymsla íbúðar. Sameiginlegt þvottahús með glugga og sér tenglum fyrir hverja íbúð.


Raflagnir og rafmagnstafla endurnýjuð, rafmagnstafla fyrir húsið er nýleg. Skólplagnir undir húsi voru endurnýjaðar fyrir að verða 20 árum síðan að sögn fyrrum eigenda. Þakrennur endurnýjaðar árið 2016. Þakjárn yfirfarið 2023. Neysluvatnslagnir endurnýjaðar 2024.

Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Nánari upplýsingar veitir:
Magnús Þórir Matthíasson lögg. fasteignasali í síma 895-1427 eða magnus@eignamidlun.is


 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Hjarðarhagi 23

107 Reykjavík
97.900.000 kr.868 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1961TegundFjölbýlishúsStærð112,8 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF20284832Fasteignamat100.200.000 kr.Brunabótamat57.450.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGrensásvegi 11, 108 ReykjavíkSími588-9090

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 35 myndir

Upp ↑