fasteignasölur.is
Strönd 11
1 af 27

Um eignina

Eignamiðlun kynnir:

Frábært frístundahús í landi Kirkjubæjar við golfvöllinn að Strönd milli Hellu og Hvolsvallar.

Um er að ræða nánar tiltekið Strönd 11, 851 Hellu, F2342231. 3ja herbergja frístundahús með svefnlofti. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 73,0 fm. Skiptist í anddyri, eldhús, stofu og borðstofu í alrými með mikilli lofthæð, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. Um 30 fm svefnloft er yfir hluta hússins með 140 cm hæð þar sem mest er. Um 180 fm timburverönd er við húsið. 

*** Sækja söluyfirlit ***

Allar upplýsingar gefur Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, sími 899-8815, kari@eignamidlun.is 

Nánari lýsing eignar:
Eldhús: Eldhúsinnrétting frá Innlifun á Suðurlandsbraut. Raftæki frá AEG, Innbyggð uppþvottavél, Span helluborð, ofn. Vifta frá Elba. Ísskápur frá Gorenje.
Stofa: Björt stofa er hluti af alrými með eldhúsi úr stofu er útgengt á sólpall um rennihurð.
Herbergi 1: Rúmgott herbergi með fataskápum.
Herbergi 2: Herbergi með kojum.
Baðherbergi: Með sturtuklefa, handklæðaofni og innréttingu. Flísar á gólfi.
Svenfloft: um 30 fm með 140 cm lofthæð í mæni.
Geymsla:  um 6 fm áföst húsi með hillum, hitakerfi og inntaki fyrir vatn.
​​​Hitakerfi: Lokað gólfhitakerfi með frostlegi.
Loftklæðining: Grenipanell er í öllum loftum hússins.
Gólfefni: Vinilparket frá Álfaborg á gólfum, flísar á baði.

Á sólpalli er rafmagnspottur með saltvatnskerfi frá Lauginni keyptur í júní 2021.
Rafmagn: 1 fasa rafmagn en 3ja fasa rafmagn komið á staðinn.
Rafmagnskynding með gólfhita. 

Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar. 
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup og 25. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í. 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Strönd 11

851 Hella (dreifbýli)
65.000.000 kr.890 þ./m²
Sumarhús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2016TegundSumarhúsStærð73 m²Herbergi3FasteignanúmerF23422311Fasteignamat42.800.000 kr.Brunabótamat49.600.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGrensásvegi 11, 108 ReykjavíkSími588-9090

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 27 myndir

Upp ↑