fasteignasölur.is
Þverárdalur sumarhús
1 af 17

Um eignina

Eignaver 460-6060

Freyjulundur í Þverárdal í Öxarfirði.
Um er að ræða fallegan sumarbústað, samtals 57,7 fm., ásamt gestahúsi/geymslu sem ekki er inni í skráðum fermetrum. Freyjulundur stendur á leigulóð nr. 16 í landi Þverár í Öxarfirði, en Þverárdalur er einstaklega skjólgóður og gróðursæll.
Húsið hefur mikið verið endurnýjað á síðustu árum.
Byggt var við bústaðinn 2021 og hann stækkaður um eitt herbergi og skiptist hann í forstofu, stofu og eldhús í einu rými, tvö svefnherbergi, geymslu/þvottahús og baðherbergi. 8 fm. gestahús/geymsla er við vesturhlið hússins og er það hitað upp með rafmagni.



Nánari lýsing:
Forstofa, parket og fatahengi.
Stofa og eldhús, nýleg svört innrétting frá IKEA, innbyggður ísskápur fylgir með við kaupin.
Svefnherbergin eru bæði ágætlega rúmgóð, nýlegt parket á gólfum.
Baðherbergið er með parketi á gólfi, sturta og gluggi með opnanlegu fagi. 
Lítil geymsla/þvottahús er innaf forstofu, parket á gólfi og hillur. 
Skipt um eldhúsinnréttingu og gólfefni á árunum frá 2021 til 2023. 

Gestahús, parket á gólfi, gengið inn af sólpalli vestan við húsið.

Annað:
- Rúmgóð c.a. 68 fm verönd, aðstaða fyrir heitan pott.
- Húsið nýlega málað utan.
- 8 fm. gestahús/geymsla sem ekki er í skráðum fermetrum.
- Upphitun, rafmagnsofnar, vatn hitað með 3 fasa gegnumstreymishitara. 
- Lagnir hafa verið endurnýjaðar að miklu leiti.
- Rafmagn hefur verið endurnýjað að miklu leiti.
- Einstakt umhverfi í skjólgóðum dal, Ásbyrgi, Dettifoss og þjóðgarðurinn í stuttri akstursfjarlægt.
- Góðar silungsveiðiár eru í næsta nágrenni og stutt niður að sjó.

Húseignin er í einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu ehf. 

Nánari upplýsingar veita:
Begga           s: 845-0671   / begga@eignaver.is
Arnar             s: 898-7011   / arnar@eignaver.is
Tryggvi          s: 862-7919   / tryggvi@eignaver.is

Þverárdalur sumarhús

671 Kópasker (dreifbýli)
26.900.000 kr.466 þ./m²
Sumarhús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2003TegundSumarhúsStærð57,7 m²Herbergi3InngangurSérinngangurFasteignanúmerF22682941Fasteignamat22.050.000 kr.Brunabótamat21.000.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHafnarstræti 97 (Krónan), 600 AkureyriSími460-6060

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 17 myndir

Upp ↑