fasteignasölur.is
Sunnusmári 26
Opið hús 16. sept. kl. 16:30–17:00
1 af 35

Um eignina

Magnús Már Lúðvíksson og RE/MAX fasteignasala kynna: Fallega og vel skipulega 3. herbergja þakíbúð á 6. hæð með miklu útsýni og sér bílastæði í lokuðum bílakjallara.

Skráning eignar: íbúð merkt 0602 stærð 113,5 fm - geymsla merkt 0024 stærð 7,8 fm - Stæði í bílakjallara merkt 02 Y
Stærð samtals: 121,3 fm  

// Penthouse - 6 hæð 
// Aukin lofthæð - ca 3,2
// Rúmgóðar þaksvalir 
// 2 rúmgóð svefnherbergi
// Sérmerkt bílastæði í bílakjallara 
// Steinn á borðum 
// Innfelld lýsing í lofti
// Mikið og fallegt útsýni

Bókið skoðun hjá Magga í síma 699-2010 eða maggi@remax.is


Nánari lýsing:
Anddyri: Parket á fólfi, gott skápapláss. 
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum að mestu, innrétting undir handlaug ásamt speglaskáp með lýsingu, upphengt salerni, sturta með hertu glerskilrúmi, handklæðaofn. 
Hjónaherbergi: Parket á gólfi, mjög gott skápapláss, rúmgott herbergi. 
Eldhús: Parket á gólfi, gott skápa- og borðpláss, innbyggð uppþvottavél frá Miele, innbyggður ísskápur, undirlímdur vaskur, steinn á borðum, eyja með span helluborði ásamt gufugleypi.
Stofa: Parket á gólfi, opin og björt, útgengt út á rúmgóðar þaksvalir í suðvestur með fallegu útsýni.
Þvottahús: Flísar á gólfi, innrétting fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, efri skápar og þvottasnúrur. 
Herbergi: Parket á gólfi, fataskápar, rúmgott. 
Geymsla: Sér geymsla í sameign. 7,8 fm. 
Bílastæði: Sérmerkt bílastæði í bílakjallara, góð staðsetning innan bílakjallara. (hleðslustöð fylgir ekki)
Íbúðin er með mynddyrasímakerfi og Danfoss forritanlegir ofnahitastillar fyrir snjallsíma.

Sunnusmári 26 er í sérlega vel staðsettu borgarhverfi í miðpunkti höfuðborgarsvæðisins þar sem stutt er í allar stofnbrautir og örstutt í fjölbreytta verslun og þjónustu í Smáralind.
Auk þess sem stutt er í leik og grunnskóla, íþróttaaðstöðu og heilsugæslu. Sérstaklega falleg og björt þakíbúð með mögnuðu útsýni á þessum vinsæla stað. 

Nánari upplýsingar veitir Magnús Már Lúðvíksson í síma 699-2010 eða maggi@remax.is

 

Sunnusmári 26

201 Kópavogur
122.900.000 kr.1.013 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2018TegundFjölbýlishúsStærð121,3 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF23668172Fasteignamat98.600.000 kr.Brunabótamat80.270.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 35 myndir

Upp ↑