fasteignasölur.is
Birkihlíð 33
1 af 33

Um eignina

Fasteignin Birkihlíð 33, Sauðárkróki ásamt tilheyrandi lóðarleiguréttindum. 
Bjart, snyrtilegt og vel skipulagt fimm herbergja einbýlishús á einni hæð ásamt sólskála og bílskúr alls 196,9 fm.
Skráð stærð íbúðarhússins er 133,7 fm., sólskála 15,2 fm. og bílskúrs 48 fm. Íbúðarhúsið var byggt árið 1970 og bílskúr 1973.
Leigulóð hússins er 998 fm. 
Eignin er mjög vel staðsett með stórkostlegu útsýni. Stutt er í góðar gönguleiðir og náttúru.

Fasteignin skiptist í fjögur herbergi, stofu, eldhús, tvö baðherbergi, þvottahús og forstofu. Sólstofa er á milli íbúðarhúss og bílskúrs.

Komið er í flísalagða forstofu með skáp.
Við forstofu er herbergi og baðherbergi. Baðherbergið er með flísum á gólfi og veggjum að hluta, sturtu, hvítri innréttingu við vask og speglaskáp. Í herberginu er parket á gólfi og skápur.
Stofa er björt og rúmgóð. Parket á gólfi. Gluggar snúa til austurs og suðurs með frábæru útsýni. Skipt hefur verið um suður glugga.
Í eldhúsi eru korkflísar á gólfi, hvít góð innrétting með dökkri borðplötu, Whirlpool helluborði og bakaraofni. Ísskápur og uppþvottavél frá Whirlpool fylgir. 
Gangur er rúmgóður og með korkflísum á gólfi. Við herbergisgang eru þrjú herbergi, þvottahús/geymsla og baðherbergi.
Herbergi eru öll parketlögð og með góðum skápum.
Baðherbergi er með dökkum flísum á gólfi og ljósum á veggjum. Hvít góð innrétting með dökkri borðplötu við vask og góðum spegli. Baðkar og sturta. Handklæðaofn.
Þvottahús/geymsla er með flísum á gólfi. Hvít góð innrétting með dökkri borðplötu og miklu skápaplássi. Vaskur í innréttingu. Þvottavélatengi hefur verið fært í bílskúr og því er ekki tengi fyrir þvottavél í rýminu.
Sólskáli er á milli íbúðarhúss og bílskúrs. Flísar á gólfi. 
Bílskúr er rúmgóður og frágenginn. Þvottavélatengi í bílskúr. Afstúkuð geymsla er í bílskúr. 

Fasteignin er almennt í góðu á standi að utan sem innan og hefur verið vel viðhaldið.
Innréttingar og skápar eru frá Trésmiðjunni Borg.
Til eru samþykktar teikningar af 7,4 fm. sólskála sem stóð til að kæmi við húsið að austan frá stofu.

Helstu endurbætur:
2020 og síðar - Allir gluggar á vestur og suðurhlið skipt út á íbúðarhúsi. Skipt um inntak á bæði heitu og köldu vatni. Enn á eftir að ganga frá rörum frá inntaki í grind þar sem veitur tóku vatnið inn á öðrum mun óhentugri stað en áður.
2015 - Skipt um frárennslislagnir út í brunn.
2010 - Eldhúsið, gangurinn, herbergi að austan og minna baðherbergi endurnýjað ásamt því að setja upp innréttingu í þvottahúsi/geymslu. Skipt var um lagnir í kringum eldhúsið en allar aðrar ofnalagnir eru upprunalegar.
2000 - Baðherbergi endurnýjað, settur gluggi í norður á baðherbergi.


Í sólskála var leki með bílskúrsveggnum sem gert var við á síðasta ári og hefur ekki orðið vart við hann síðan, en þar eru bersýnileg ummerki um leka. Það er móða á milli glerja í sólskála.

Í lögum um fasteignakaup er lögð áhersla á skoðunarskyldu kaupanda. Væntanlegir kaupendur eru hvattir til að kynna sér ástand eignarinnar vandlega og afla sér aðstoðar sérfræðinga  við frekari skoðun sé þess þörf að þeirra mati. Sú áhætta fylgir kaupum á fasteignum að ekki er hægt að átta sig á ástandi á þeim hlutum eignarinnar sem ekki sjást við venjulega skoðun svo sem fráveitu-, vatns- og miðstöðvarlögnum svo og þaki eftir atvikum.

Birkihlíð 33

550 Sauðárkrókur
90.000.000 kr.457 þ./m²
Einbýlishús4 svefn · 2 bað
Byggingarár1970TegundEinbýlishúsStærð196,9 m²Herbergi6InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF21312791Fasteignamat81.000.000 kr.Brunabótamat100.750.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSæmundargata 1, 550Sími453-5900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 33 myndir

Upp ↑