fasteignasölur.is
Úlfarsbraut 68
1 af 40

Um eignina

Hreiðar Levý, löggiltur fasteignasali og Betri Stofan Fasteignasala kynna glæsilegt, bjart og afar vel skipulagt 210,5 m², 6 herbergja parhús á fjórum pöllum með innbyggðum bílskúr, lokuðum suðvesturgarði með heitum potti og stórfenglegu útsýni yfir ósnortna náttúru Úlfarsárdals.

Eignin býður í dag upp á 4 rúmgóð svefnherbergi og 2 stofur, með möguleika á að bæta við 5. svefnherberginu á efsta palli. Gólfhiti með stýringu fyrir hvert rými. Aðkoma að húsinu er til fyrirmyndar á upphituðu, hellulögðu bílaplani fyrir framan inngang og bílskúr. Innandyra einkennist húsið af aukinni lofthæð, vönduðu efnisvali og stórum gólfsíðum gluggum sem tryggja einstakt birtuflæði og óhindrað útsýni yfir náttúruna. Húsið stendur á eftirsóttum og fjölskylduvænum stað í lokuðum botnlanga fremst í dalnum, þaðan sem gönguleiðir í skóla, leikskóla, sund og íþróttir eru sérlega stuttar, flatar og öruggar.


Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, löggiltum fasteignasala, í síma 661-6021 eða á hreidar@betristofan.is

Skráning og byggingarár:
Samkvæmt FMR er eignin skráð sem hér segir:
Fastanúmer: 230-0625
Birt flatarmál: 210,5 m²
Stærð lóðar: 611,0 m²
Byggingarár: 2008

Nánari lýsing:

Miðpallur / Forstofa – Björt og fáguð aðkoma með innangengum bílskúr, baðherbergi og fataherbergi. Gengið er inn af upphituðu, hellulögðu bílaplani inn á miðpall hússins sem myndar vel skipulagða og glæsilega aðkomu. Hér er miðja hússins þaðan sem gengið er bæði upp í alrými efri hæðar og niður í svefnálmuna.

Forstofa og hol: Rúmgóð forstofa með stórum, ljósgráum gólfflísum og glæsilegum innbyggðum skápum úr hlýlegum viðartónum sem ná upp í fulla lofthæð. Gólfsíður gluggi við hlið útihurðar hleypir mikilli dagsbirtu inn.
Fataherbergi / Fatageymsla: Inn af forstofurými er sér fataherbergi (skot) með glugga, fatahengjum, skóhillum og skúffueiningum sem nýtist einstaklega vel fyrir útifatnað fjölskyldunnar.
Baðherbergi: Staðsett inn af forstofugangi. Flísalagt með ljósum og gráum flísum, upphengdu salerni, walk-in sturtu með stórum regnsturtuhaus, hvítri upphengdri innréttingu með svarti borðplötu, ofanáliggjandi handlaug, speglaskáp og handklæðaofni.
Bílskúr: Innangengt er beint úr forstofu inn í rúmgóðan bílskúr með mikilli lofthæð, máluðu gólfi, geymsluhillum og sjálfvirkri innkeyrsluhurð.
Stigagangur: Frá forstofurými liggur breiður, flísalagður stigi með stílhreinu glerhandriði upp í alrýmið, ásamt stiga sem liggur niður í svefnálmuna.

Neðsti pallur – Gengið er niður flísalagðan stiga frá forstofu á neðsta pallinn sem hýsir vel aðskilda og friðsæla svefnálmu með 3 svefnherbergjum ásamt þvottahúsi eignarinnar. Beint útgengi er út í bakgarðinn úr einu svefnherbergjanna og úr þvottahúsi.

Gangur / Hol: Tengir saman herbergi og þvottahús.
Svefnherbergi I: Rúmgott herbergi með dökkum eikartónum á parketi, stórum gólfsíðum horngluggum sem snúa út í garðinn, rúmgóðum dökkgráum fataskápum og útgengi beint út á verönd og grasflöt.
Svefnherbergi II: Rúmgott barnaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi III: Bjart svefnherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Þvottahús: Sérlega snyrtilegt og hagnýtt þvottahús með flísum á gólfi, upphækkaðri innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara með skúffum undir, skolvaski með mósaíkflísum á bakvegg, upphengdum þvottasnúrum og útgönguhurð beint út í bakgarðinn.

Efri pallur – Bjart alrými með mikilli lofthæð og útsýnissvölum. Af forstofupalli er gengið upp breiðan, flísalagðan stiga með glerhandriði upp í hjarta heimilisins þar sem stofa, borðstofa og eldhús renna saman í eitt bjart og opið rými.

Alrými og stofa: Einstaklega glæsilegt rými með mikilli lofthæð og stórum gólfsíðum gluggum sem hleypa mikilli dagsbirtu inn og bjóða upp á óhindrað útsýni til suðurs yfir dalinn og náttúruna. Úr alrýminu er gengið út á skjólgóðar suðursvalir. Rýmið rúmar hæglega stórt borðhald og myndarlega setustofu.
Eldhús: Sérlega vel útbúið og hannað með samveru að leiðarljósi. Innréttingin samanstendur af hvítri, innbyggðri skápainnréttingu með miklu geymsluplássi, innfelldum ofni í vinnuhæð, aðstöðu fyrir innbyggðan örbylgjuofn í vinnuhæð ásamt tveimur innbyggðum ísskápum. Á gólfi er stór og breið eyja með svörtum framhliðum og gegnheilum viðarborðplötum sem renna niður hliðarnar. Á eyjunni eru skúffur, innfelldur vaskur, helluborð, uppþvottavél, stílhreinn háfur og setpláss fyrir 2–3 barstóla.

Efsti pallur – Sjónvarpsstofa, rúmgott hjónaherbergi og aðalbaðherbergi. Frá alrýminu er gengið upp stuttan stiga á efsta pall hússins sem hýsir fjölskyldurými og hjónaherbergi.

Sjónvarpsstofa / Opið hol: Rúmgóð og notaleg stofa með stórum gluggum. Rýmið er opið að hluta ofan í alrýmið yfir glerhandrið sem gefur mikla lofthæð og flæði. Í dag er plássið nýtt sem sjónvarps- og tónlistarstofa, en nýtist einnig frábærlega sem leiksvæði eða vinnuaðstaða. Auðvelt er að loka rýminu og útbúa 5. svefnherbergi hússins.
Hjónaherbergi: Sérlega rúmgott herbergi með miklu skápaplássi úr gráum innbyggðum skápum á tveimur veggjum í fullri lofthæð.
Aðalbaðherbergi: Fallegt og vandað baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf með ljósgráum og hvítum flísum. Þar er upphengt salerni, stórt innbyggt baðkar og sturta, handklæðaofn, hvít upphengd innrétting með svarti borðplötu, ofanáliggjandi handlaug og stór spegill. Góður lokaður skápur tryggir mikið geymslupláss.

Garður og útisvæði:
Bakgarðurinn snýr mót suðvestri og er lokaður af með timburveggjum sem tryggja skjól og mikið næði. Á veröndinni er innbyggður heitur pottur sem nýtist allan ársins hring, ásamt grasfleti og beinu aðgengi frá einu af herbergjum neðri hæðar og þvottahúsi. Fyrir framan húsið er snyrtilegt hellulagt bílaplan með snjóbræðslu.

Staðsetning og umhverfi:
Úlfarsbraut 68 er staðsett í friðsælum botnlanga fremst í Úlfarsárdal án gegnumakandi umferðar. Hverfið er sérhannað fyrir barnafjölskyldur með aðskildu stígakerfi sem tryggir öruggar gönguleiðir.

Skóli og leikskóli: Dalskóli (samrekinn leik- og grunnskóli með frístundaheimili og félagsmiðstöð) er í um 4 mínútna göngufjarlægð.
Íþróttir og tómstundir: Nýtt íþróttasvæði Fram og Dalslaug eru í um 8–10 mínútna göngufjarlægð.
Útivist við útidyrnar: Merktar göngu- og hlaupaleiðir liggja beint upp á Úlfarsfell og meðfram bökkum Úlfarsár. Í næsta nágrenni eru Reynisvatn, Hafravatn og Hamrahlíðarskógur, ásamt því að stutt er á bæði Korpúlfsstaða- og Hlíðarvöll.
Samgöngur: Örstutt er út á stofnbrautir (Vesturlandsveg og Suðurlandsveg), sem tryggir greiða leið í allar áttir á höfuðborgarsvæðinu.

Glæsilegt 210,5 m² parhús á pöllum í friðsælum botnlanga í Úlfarsárdal. 4-5 rúmgóð svefnherbergi, tvær stofur, innbyggður bílskúr og lokaður garður með heitum potti. Frábær fjölskyldueign með ósnortna náttúru, stórfenglegt útsýni, skóla, leikskóla, sundlaug og íþróttasvæði Fram í öruggu göngufæri.

Nánari upplýsingar veitir: Hreiðar Levý Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í síma 661-6021 eða hreidar@betristofan.is


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Úlfarsbraut 68

113 Reykjavík
158.500.000 kr.753 þ./m²
Rað-/parhús4 svefn · 2 bað
Byggingarár2008TegundRað-/parhúsStærð210,5 m²Herbergi6InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF23006251Fasteignamat139.150.000 kr.Brunabótamat109.810.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 40 myndir

Upp ↑